Brjótum vítahringinn Rebekka Karlsdóttir skrifar 24. mars 2021 10:01 Undanfarið ár hefur kórónuveirufaraldurinn haft veruleg áhrif á daglegt líf námsmanna. Fjöldi stúdenta missti vinnuna í upphafi faraldursins og kom það mörgum í opna skjöldu að vegna þess að þau voru námsmenn áttu þau ekki rétt á atvinnuleysisbótum, þrátt fyrir að af launum þeirra sé greitt mánaðarlega í atvinnuleysistryggingasjóð. Þrátt fyrir ötula vinnu og mikinn þrýsting stúdenta undanfarið ár hafa yfirvöld ekki látið undan og veitt stúdentum þennan rétt. Samkvæmt fyrstu tölum úr könnun Eurostudent VII telja 72% íslenskra stúdenta að án vinnu hefðu þau ekki efni á að vera í námi. Þá telja 25 prósent íslenskra stúdenta að vinna þeirra hafi áhrif á námsframvindu, 31 prósent glímir við fjárhagslega erfiðleika og 43 prósent eyða 40 prósent eða meira af mánaðarlegum tekjum sínum í húsnæði. Sú staðreynd að 31% íslenskra stúdenta glími við fjárhagslega örðugleika getur ekki talist eðlilegt. Hvers vegna þurfa námsmenn að hafa fjárhagsáhyggjur og vinna með skóla? Grunnframfærsla Menntasjóðs námsmanna fyrir skólaárið 2020-2021 fyrir barnlausan stúdent í eigin- eða leiguhúsnæði eru rétt rúmar 112 þúsund krónur á mánuði. Dæmigert neysluviðmið, sem Félagsmálaráðuneytið áætlar, er 130 þúsund krónur. Þetta þýðir að grunnframfærsla lánanna er einungis 85% af dæmigerðu neysluviðmiði. Stúdentar eiga því að ná að lifa á upphæð sem er lægri en viðmið félagsmálaráðuneytisins fyrir mánaðarlegum útgjöldum. Hvers vegna fá námsmenn ekki framfærslulán sem duga fyrir útgjöldum? Vegna lágrar grunnframfærslu neyðast margir stúdentar til þess að vinna með námi. Einn stærsti sigur sem náðst hefur í lánasjóðsmálum á undanförnum árum er hækkun frítekjumarksins, þröskuldsins sem segir til um hversu mikið stúdent má þéna á ári áður en námslánið þeirra skerðist. Árstekjur flestra stúdenta eru meiri en frítekjumarkið segir til um. Vegna þess þurfa stúdentar að vinna enn meira og vítahringurinn heldur áfram. Þetta getur ekki talist eðlilegt. Röskva vill að grunnframfærslan verði hækkuð um 17 prósent hið minnsta svo að stúdentar sem taka námslán neyðist ekki til að vinna með námi og lenda í þessum vítahringi. Úthlutunarreglna vegna skólaársins 2021-2022 er að vænta á næstu dögum og vonum við að mennta- og menningarmálaráðherra sjái hag í því að tryggja stúdentum mannsæmandi grunnframfærslu. Höfundur er oddviti framboðslista Röskvu á Félagsvísindasviði Break the vicious cycle In the past year the COVID-19 pandemic has had a significant impact on students' daily lives. Many students lost their jobs at the beginning of the pandemic so it came as a surprise to many that because of their status as students, they were not entitled to unemployment benefits, even though they pay each month into the Unemployment Insurance Fund. Despite hard work and students’ pressure in recent years, the authorities have not backed down and granted unemployment benefits to students. According to initial figures from the Eurostudent VII survey, 72% of Icelandic students believe that without work, they would not be able to afford to study. 25% of Icelandic students believe that their work affects academic progress, 31% struggle with financial straits and 43% spend 40% or more of their monthly income on housing. The fact that 31% of Icelandic students are struggling financially cannot be considered normal. Why do students have to worry about finances and work with studying? For a childless student in their own or rented housing, the maintenance support stipend from the Student Education Fund, for the school year 2020-21, is just over ISK 112.000 per month. A typical consumption standard, estimated by the Ministry of Social Affairs, is ISK 130.000. This means that the basic loan stipend is only 85% of the typical consumption standard. Students are therefore expected to survive on an amount that is lower than the Ministry of Social Affairs' criteria for monthly expenses. Why do students not get enough for living expenses? Due to low loan stipends, many students are forced to work along with their studies. In recent years, one of the biggest achievements in loan fund matters is the increase of the maximum income threshold, that indicates how much a student can earn a year before their student loan stipends are reduced. The annual income of most students is higher than the maximum income threshold. As a result, students need to work even harder and the vicious cycle continues. This can not be considered normal. Röskva wants the basic maintenance support stipend to be increased by at least 17%, so that students who take out student loans are not forced to work alongside their studies and end up in this vicious cycle. Allocation rules for the school year 2021-22 are expected in the next few days and we hope that the Minister of Education and Culture will see an advantage in ensuring students decent basic loan stipends. The author is a Röskva candidate for The Student Council of the University of Iceland, School of Social Sciences. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hagsmunir stúdenta Mest lesið Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar Skoðun Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson skrifar Skoðun Veit sem sagt Grímur betur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson skrifar Skoðun Kárhóll og Kína: Þegar vísindi verða pólitísk tól Davíð Michelsen skrifar Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn gegn fjölskyldusameiningum? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðið deyr í myrkrinu Heiðar Örn Sigurfinnsson skrifar Skoðun Færni til framtíðar Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lestu Gaza Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar Skoðun 10 ár og bull í lokin Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Opið bréf til atvinnuvegaráðherra: 48 daga, nei takk Gísli Gunnar Marteinsson skrifar Skoðun Á nú að opinbera það að ég veit í rauninni ekki neitt? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Háskóli Höfuðborgarinnar, ekki Íslands Arent Orri Claessen,Gunnar Ásgrímsson skrifar Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Bætt skipulag fyrir stúdenta Aðalsteinn Haukur Sverrisson ,Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Staðan á húsnæðismarkaði: Offramboð af röngu meðaltali Egill Lúðvíksson skrifar Sjá meira
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun
Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar
Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar
Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar
Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar
Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun