Innlent

Lokuðu á streymið frá eld­stöðvunum eftir að skilti var sett fyrir mynda­vélina

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
„Engar brottvísanir.“ Bak við skiltið rétt glyttir í annan gíganna í Geldingadölum.
„Engar brottvísanir.“ Bak við skiltið rétt glyttir í annan gíganna í Geldingadölum. Skjáskot/RÚV

Lokað var tímabundið á streymi Ríkisútvarpsins sem sýnt hefur eldsumbrotin í Geldingadölum síðustu daga. Búið var að koma skilti með skilaboðunum „No deportations“ eða „Engar brottvísanir“ andspænis myndavélinni, þannig að lítið sem ekkert sást í gosið. Í kjölfarið var útsendingin rofin. Þegar útsending hófst aftur var skiltið farið.

Í svari Braga Reynissonar, öryggisstjóra RÚV og yfirmanns útsendingarinnar, kemur fram að færst hafi í aukana að fólk stilli sér upp fyrir framan vefmyndavélina sem komið hefur verið upp við gosstöðvarnar. Það komi í veg fyrir að fólk heima í stofu geti fylgst með því sem fyrir augu ber.

„Nú um hádegisbil voru aðilar búnir að reka niður skilti fyrir framan vélina og því var ekki frá neinu eldgosi að sýna, því tókum við þá tæknilegu ákvörðun að taka myndina úr loftinu. Við fengum í kjölfarið aðstoð björgunarsveita við að fjarlægja skiltið svo gosið sæist aftur frá vélinni,“ segir í svari til fréttastofu.

Útsendingin lá niðri í um það bil sjö mínútur, með örstuttu hléi þar sem skiltið sást aftur.

Útsendingin var rofin upp úr klukkan 13 í dag.Skjáskot/RÚV

Þá segir að einkar erfitt sé að ganga frá vélinni á fjallstoppi þannig að ekkert byrgi sýn og myndin sé stöðug á sama tíma. Ekki stendur til að setja öryggisvakt við vélina.

„Við vonum því sannarlega að við getum haldið áfram þessum beinu útsendingum en hikum ekki við að taka streymi úr loftinu ef ekkert eldgos er lengur að sjá.“

Hér að neðan má sjá beint streymi RÚV frá Geldingadölum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×