Á sama tíma og það er lítið sem ekkert að gera í ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi þá ætlar sveitarfélagið að fara að huga að uppbyggingu innviða og þar er nýr leikskóli efst á borði.
„Já, þetta er nýr sextíu barna leikskóli sem við erum að fara að byggja, enda ekki vanþörf á því það hefur verið heilmikil barnasprengja hérna hjá okkur. Á síðasta ári fæddust fleiri í Mýrdalshreppi heldur en nokkru sinni áður, eða frá því að sveitarfélagið varð til,“ segir Einar Freyr Elínarson, oddviti.
Er þetta eitthvað í vatninu hjá ykkur eða, af hverju er fólk svona öflugt?
„Ég veit ekki hvað það er en hér er gott að búa og gaman að vera. Við viljum gjarnan þjónusta fólk með börn eins vel og mögulegt er, þannig að við erum mjög spennt fyrir þessu verkefni, nýja leikskólanum. Við gerum ráð fyrir þremur deildum en skólinn verður nokkuð rúmlega stór til að byrja með en ef við verðum svona dugleg áfram í sveitarfélaginu þá verður við fljót að fylla hann,“ segir Einar Freyr.
Hann segir að skólinn muni kosta einherjar hundruð milljóna en það verði passað að sýna ráðdeild og útsjónarsemi við byggingu hans.