„Tilboðsfranskar“ heyra sögunni til Atli Ísleifsson skrifar 19. apríl 2021 13:10 „Lúkkið er það sama þrátt fyrir nafnabreytinguna,“ segir rekstarstjóri Þykkvabæjar. Vísir/Atli Þykkvabæjar hefur breytt nafninu á Tilboðsfrönskum fyrirtækisins sem hafa heitið því nafni svo áratugum skiptir. „Þykkvabæjarfranskar“ heita þær núna, en útlitið pakkninganna er þó áfram hið sama – svartir stafir á gulum grunni.
Haraldur Pétursson, rekstarstjóri Þykkvabæjar, segir í samtali við Vísi að fyrirtækið hafi ákveðið að breyta nafninu þar sem það hafi talist vera á gráu svæði. „Samkvæmt samkeppnislögum mega vörur ekki vera á tilboði lengur en í sex vikur. Þegar vörur eru á tilboði þarf líka að lýsa fyrra verði.“ Útlit vörunnar Tilboðsfranskar hefur haldist svo gott sem eins í áratugi.Þykkvabæjar Við vorum í hvorugu tilfellinu að tikka í þau box þannig að við ákváðum að breyta nafninu. Þar sem varan er búin að heita Tilboðsfranskar í tugi ára þá var þetta tvíbent, hvort við værum laganna megin eða ekki. Til að taka af allan vafa þá breyttum við þessu og látum þær heita Þykkvabæjarfranskar. Þetta er sama varan, en heitir ekki lengur Tilboðs-,“ segir Haraldur. Fyrsta ábendingin vegna nafnabreytingarinnar Haraldur segist ekki telja að fólk muni sakna nafnsins sérstaklega og að símtal fréttastofu sé það fyrsta sem berst fyrirtækinu vegna nafnabreytingarinnar. Haraldur segir vöruna mjög vinsæla, enda hafi hún verið lengi á markaði. „Lúkkið er það sama þrátt fyrir nafnabreytinguna. Það er heldur engin hækkun á verði eða neitt slíkt. Allt annað óbreytt, bara nýtt nafn,“ segir Haraldur.
Neytendur Auglýsinga- og markaðsmál Tímamót Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira