Helena sú fyrsta á öldinni til að vinna fjögur ár í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2021 16:10 Helena Sverrisdóttir í leik með Val á móti sínu gamla félagi, Haukum, í vetur. Vísir/Bára Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í gærkvöldi með öruggum sigri á Snæfell og einn leikmaður liðsins hefur nú unnið þennan titil samfellt frá vorinu 2018.
Helena Sverrisdóttir var nefnilega að verða deildarmeistari í Domino´s deild kvenna fjórða árið í röð. Helena hefur unnið þrjú undanfarin tímabil með Val en þar áður varð hún deildarmeistari með Haukum. Helena hefur tekið þátt í 83 leikjum í deildarkeppninni undanfarin fjögur tímabil og lið hennar hafa unnið 72 af þessum leikjum eða 87 prósent leikjanna. Helena hefur spilað 58 deildarleiki með Val og liðið hefur unnið 54 þeirra eða 94 prósent. DEILDARMEISTARAR! Valur er deildarmeistari Domino's deildar kvenna tímabilið 2020-2021! KKÍ óskar Val til hamingju!Posted by KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands on Þriðjudagur, 4. maí 2021 Helena var með 11 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar á 17 mínútum á móti Snæfelli í gær en er með 13,6 stig, 9,5 fráköst og 4,2 stoðsendingar að meðaltali í leik í deildinni í vetur. Helena er að koma til baka eftir að hafa eignast barn í lok síðasta árs. Helena er fyrsta körfuboltakonan á öldinni sem nær að verða deildarmeistari fjögur ár í röð. Síðastar til að vinna deildina fjögur ár í röð voru leikmenn Keflavíkurliðins í lok 20. aldarinnar með Önnu Maríu Sveinsdóttur í fararbroddi. Keflavík vann fyrstu sex deildarmeistaratitlana eftir að úrslitakeppni kvenna var tekin upp vorið 1993.
Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Fótbolti Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Sjá meira