Innlent

Bryndís gefur kost á sér í annað sætið í Kraganum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins gefur kost á sér í annað sætið í Kraganum fyrir þingkosningarnar í haust.

Bryndís er einn af varaforsetum þingsins og situr í utanríkismálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd. Þá situr hún í Íslandsdeild ÖSE og Vestnorrænaráðinu.

„Utanríkisráðherra fól Bryndísi að leiða þverpólitíska nefnd sem endurskoðaði Norðurslóðastefnu Íslands, en stefnan er nú í meðförum þingsins. Bryndís hefur jafnframt setið í framtíðarnefnd forsætisráðherra og sat í starfshóp um mælikvarða fyrir hagsæld og lífsgæði,“ segir í tilkynningu.

„Bryndís hefur lagt fram fjölda mála á þinginu meðal annars; lagningu Sundabrautar í einkaframkvæmd, frumvarp um að iðn- verk og starfsnám verði gert jafnhátt undir höfði og bóknám í löggjöf um inntökuskilyrði í háskóla. Frumvarp um að gera dreifingu jarðneskra leifa (ösku) frjálsa.

Bryndís hefur lagt fram skýrslubeiðnir og þingsályktun um dánaraðstoð.

Bryndís sat í bæjarstjórn Mosfellsbæjar 2010-2018 hún var þar formaður bæjarráðs og skipulagsnefndar. Bryndís var stjórnarformaður Strætó bs. og sat í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.“

Bryndís er gift Örnólfi Örnólfssyni rafvirkjameistara og þau eiga þrjú börn.

„Bryndís hefur verið í eigin atvinnurekstri og starfaði lengi að nýsköpunar- og frumkvöðlamálum hjá Nýsköpunarmiðstöð.

Bryndís hefur tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins allt frá því hún gekk til liðs við flokkinn árið 2002. Bryndís hefur meðal annars stýrt atvinnuveganefnd flokksins, setið í stjórn SUS og stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna, fulltrúaráði og kjördæmisráði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×