Hérna vilja Almannavarnir ekki missa hraunið lengra Kristján Már Unnarsson skrifar 11. maí 2021 21:31 Hraunkanturinn eins og hann hefur verið síðustu daga í nafnlausa dalnum. Almannavarnir eru viðbúnar því að ryðja upp varnargörðum þarna í von um að geta hindrað frekari framrás hraunsins í þessa átt. KMU Eldgosið í Fagradalsfjalli er núna tvöfalt öflugra en það hefur lengst af verið, samkvæmt nýjum mælingum Jarðvísindastofnunar. Almannavarnir eru í viðbragðsstöðu með að láta ryðja upp varnargörðum til að hindra að hraunrennsli fari í Nátthaga og ógni þar með Suðurstrandarvegi.
Hinn breytti taktur eldgossins undanfarnar tvær vikur, með himinháum kvikustrókum en hléum þess á milli, hefur einnig skilað sér í auknu hraunrennsli. Þannig mælir Jarðvísindastofnun meðalrennslið núna þrettán rúmmetra á sekúndu, en var áður átta rúmmetrar á sekúndu, en fjallað var um þessa nýju stöðu í fréttum Stöðvar 2. Jarðvísindastofnun segir gosið núna tvöfalt öflugra en það hafi lengst af verið.KMU Nýtt þrívíddarlíkan Náttúrufræðistofnunar sýnir að hraunið er búið að fylla botn Geldingadala en það hefur einnig runnið í nafnlausan dal sem og Meradali. Meginhraunstraumurinn síðustu daga hefur verið til austurs í nafnlausa dalinn og þaðan niður í Meradali. Hörður Sigurðsson, einn af eigendum jarðarinnar Hrauns og áður fjallkóngur svæðisins, segir dalinn reyndar ekki nafnlausan. Hann hafi vanist því að hann sé einn af Meradölum og sá syðsti þeirra. Hér sést hve stutta leið hraunið á eftir til að komast í drög Nátthaga til hægri.KMU Hrauntungan í dalnum hefur núna stöðvast skammt frá brekku niður í Nátthaga en þangað vilja Almannavarnir í lengstu lög reyna að hindra að hraunið komist. „Ef þetta fer niður í Nátthaga þá er styttra niður á Suðurstrandarveg og þá fer þetta að hafa veruleg áhrif á innviði, sem sagt á veginn og samgöngur,“ segir Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum. Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.Sigurjón Ólason „En ef við náum að halda því frá því og þetta fari áfram í Meradalina þá getum við safnað þar upp alveg mjög drjúgt af efni. Og þó að það myndi fylla þar, svæðið þar austan við sem þá tæki næst við, það getur líka tekið drjúgt við. Þannig að það er til mikils að vinna fyrir innviðina.“ Ef hraunið kemst niður í Nátthaga er talið að erfitt verði að hindra það í að renna yfir Suðurstrandarveg.Grafík/Ragnar Visage Eins og myndir í frétt Stöðvar 2 sýna vantar lítið upp á að hraunið komist fram úr nafnlausa dalnum og niður í Nátthaga en þegar er búið að forhanna varnargarð. „Þetta yrði ekki stórt mannvirki. Það þyrfti að setja upp tvö lítil mannvirki sitthvoru megin við hæð, sem er þarna við endann á nafnlausa dalnum. Til að byrja með þá er reiknað með að þetta yrði svona fjórir metrar á hæð.“ Hér sést afstaða Nátthaga miðað við eldsprunguna sem jarðeldurinn kom upp úr. Rögnvaldur segir að hægt væri með mjög litlum fyrirvara að koma vinnuvélum á svæðið til að ryðja upp varnargörðum. „Það stefndi jafnvel í það á föstudaginn. Þá var aftur byrjað að streyma hraun inn í þennan nafnlausa dal. Við vorum komnir í startholurnar með að setja þetta af stað. En síðan varð það ekki eins mikið og leit út fyrir í fyrstu og meginstraumurinn er ennþá niður í Meradali. Þannig að við höldum að okkur höndum aðeins lengur,“ segir Rögnvaldur. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Eldgos í Fagradalsfjalli Eldgos og jarðhræringar Grindavík Almannavarnir Samgöngur Vegagerð Tengdar fréttir Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag. 10. maí 2021 21:32 Gosið tvöfalt öflugra en hefur verið lengst af Veruleg aukning hefur orðið í hraunrennsli í Fagradalsfjalli síðustu vikuna. Meðalrennslið yfir tímabilið mælist þrettán rúmmetrar á sekúndu sem er miklu meira en þeir tæplega átta rúmmetrar á sekúndu sem áður hafa mælst. 11. maí 2021 11:48 Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Sjá meira
Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag. 10. maí 2021 21:32
Gosið tvöfalt öflugra en hefur verið lengst af Veruleg aukning hefur orðið í hraunrennsli í Fagradalsfjalli síðustu vikuna. Meðalrennslið yfir tímabilið mælist þrettán rúmmetrar á sekúndu sem er miklu meira en þeir tæplega átta rúmmetrar á sekúndu sem áður hafa mælst. 11. maí 2021 11:48