Þrír ungir menn handteknir grunaðir um líkamsárás Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. maí 2021 07:19 Ellefu voru stöðvaðir í nótt, grunaðir um akstur undir áhrifum og/eða án ökuréttinda. Vísir/Kolbeinn Tumi Þrír ungir menn voru handteknir á miðnætti í gær grunaðir um líkamsárás í Breiðholti. Mennirnir voru allir í annarlegu ástandi. Brutu þeir þá lögreglusamþykkt og fóru ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Þeir voru allir vistaðir í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Tilkynnt var um þjófnað rétt fyrir klukkan sjö á bensínstöð í Breiðholti í gærkvöldi. Konan hnuplaði eldsneyti og öðrum vörum af bensínstöðinni og veittist síðan að starfsmanni stöðvarinnar. Hún var farin af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn en hún var handtekin síðar. Þá var tilkynnt um annað, yfirstandandi innbrot í verslun í Hlíðunum rétt fyrir klukkan fjögur í nótt. Tveir menn sáust spenna upp hurð og stela rafmagnshlaupahjólum. Mennirnir náðust ekki og er málið í rannsókn. Rúta og bifhjól lentu í árekstri á Kringlumýrarbraut á tíunda tímanum í gærkvöldi. Hjólið er mikið skemmt og einn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi, hann er þó ekki sagður alvarlega slasaður. Bíl var stolið úr bílasölu í Breiðholti á sjötta tímanum í gærkvöldi en bifreiðin var síðan stöðvuð rétt fyrir miðnætti. Ökumaðurinn var handtekinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, ítrekaðan akstur án réttinda, vörslu fíkniefna og innbrot. Ökumaðurinn var vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu. Ökumaður var þá handtekinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, ítrekaðan akstur án gildra ökuréttinda, vörslu fíkniefna og brot á vopnalögum. Málið er til rannsóknar og var maðurinn vistaður í fangageymslu. Tíu til viðbótar voru stöðvaðir grunaðir undir akstur undir áhrifum og/eða án ökuréttinda.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili „Árleg æfing í vonbrigðum“ Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Sjá meira