Skoðun

Hættum að rífast og byrjum að vinna

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Álag á samgöngukerfið á Íslandi hefur aukist mikið á síðasta áratug en sérfræðingar hafa nú greint flæði umferðar, skipulags- og uppbyggingaráætlanir og lagt fram heildaráætlun sem birtist í höfuðborgarsáttmálanum sem öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu ásamt ríkinu. Í sáttmálanum er horft til ljósastýringar, stofnvegaframkvæmda, eflingu almenningssamgangan og hjólreiðastíga. Heildstæð lausn sem mun gagnast okkur öllum. Sundabraut er ekki hluti af höfuðborgarsáttmálanum en er engu að síður mikilvæg samgöngubót bæði fyrir höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina.

Minna kolefnisfótspor með Sundabraut

Sundabraut styttir vegalengdina á milli Kjalarness og miðborgarinnar og bætir umferðaraðgengi frá Vestur- og Norðurlandi að borginni. Þá léttir Sundabraut á umferð um Vesturlandsveg í gegnum Mosfellsbæ. Sundabraut sparar akstur og þungaflutninga og mun þannig spara kolefnisfótspor. Hún er mikilvæg tenging við gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins og með henni verður til bætt tenging Grafarvogshverfis við gatnakerfi borgarinnar og töluvert myndi draga úr álagi um Ártúnsbrekku.

Einkaframkvæmd er eina lausnin

Kostnaður við Sundabraut er áætlaður á bilinu 70-80 milljarðar og til samanburðar eru heildarframlög til Vegagerðarinnar 30 milljarðar, þar með taldir innviðir í flugi, siglingum og vegakerfi. Það er því algjörlega óraunhæft að ætla að hægt sé að taka 70-80 milljarða, til að leggja Sundabraut, úr ríkissjóði. Það myndi kalla á að ekkert annað yrði gert í viðhaldi eða uppbyggingu annarra samgöngumannvirkja eða að fjármagn yrði tekið úr öðrum mikilvægum málaflokkum eins og heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu, löggæslu o.s.frv. Hér þarf einfaldlega aðrar lausnir.

Hvalfjarðargöngin gott dæmi

Í mörg ár hefur verið bent á möguleika á samstarfsverkefni einkaaðila og hins opinbera, svokölluð PPP-verkefni, og eru Hvalfjarðargöng besta dæmið um slíkt. Ég lagði ásamt nokkrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins fram þingsályktun þar sem lagt er til að Sundabraut verði boðin út í einkaframkvæmd og er sannfærð um að það sé raunhæf leið til að sjá þessa samgöngubót verða að veruleika. Ég er sannfærð um að lífeyrissjóðir og aðrir fjárfestar sem horfa til lengri tíma telji Sundabraut arðbæran og álitlegan fjárfestingakost. Hættum að rífast um þetta og byrjum að vinna!

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, býður sig fram í 2. sætið í komandi prófkjöri dagana 10.-12. júní.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×