Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar 27. október 2026 10:30 Landsamband eldri borgara (LEB) hefur á síðustu fimm árum náð mikilvægum árangri í réttinda- og kjarabaráttu eldra fólks. Það er ástæða til að fagna þeim sigrum sem unnist hafa. Þeir eru ekki sjálfsagðir og komu ekki af sjálfu sér. Þeir eru afrakstur þrotlausrar baráttu, samstöðu og skýrrar kröfugerðar gagnvart stjórnvöldum. Núverandi stjórnvöld hafa sýnt okkur velvilja og það ber að þakka. En við megum ekki láta árangurinn blinda okkur. Þrátt fyrir batnandi lífskjör stórra hópa þjóðarinnar búa þúsundir eldri borgara enn við kjör sem við eigum ekki að sætta okkur við í einu ríkasta samfélagi heims. Sigrar sem skipta máli Einn stærsti sigur LEB er samþykkt Alþingis um að grunnlífeyrir almannatrygginga hækki í samræmi við launavísitölu frá 1. janúar 2027. Þetta er grundvallarbreyting sem sambandið hefur lengi barist fyrir. Hún felur í sér mikilvæga viðurkenningu á því að eldri borgarar eigi að njóta þeirrar kjaraþróunar sem verður í samfélaginu. Annar mikilvægur sigur náðist á árinu 2026 þegar Alþingi samþykkti breytingar á reglum um endurnýjun ökuskírteina eldri borgara. Þar var loksins brugðist við áralangri baráttu gegn óþarfa kostnaði og íþyngjandi kröfum. Þetta snýst ekki bara um peninga heldur einnig um sjálfstæði, ferðafrelsi og mannlega reisn. LEB hefur orðið öflugra og sýnilegra í þjóðfélagsumræðunni. Á síðasta starfsári heimsóttum við öll aðildarfélög sambandsins sem eru 61 talsins. Þar fundum við fyrir miklum krafti og samstöðu. Við höfum eflt samstarf við verkalýðshreyfinguna og önnur hagsmunasamtök og komið málefnum eldri borgara af meiri þunga inn í stjórnmálaumræðuna. Það er árangur sem við eigum að vera stolt af og þakklát fyrir. Þúsundir eldri borgara sitja eftir En það er önnur hlið á íslenska velferðarsamfélaginu sem stjórnvöld verða að horfast í augu við. Samkvæmt þeim tölum sem LEB hefur undir höndum hafa um 1.200 eldri borgarar heildartekjur undir 400 þúsund krónum á mánuði og um 8.000 þeirra hafa tekjur undir lægstu launatöxtum á almennum vinnumarkaði. Hvernig getur þjóð sem státar af mikilli velmegun réttlætt slíka stöðu? Hvernig getur það talist ásættanlegt að fólk sem hefur unnið alla sína starfsævi, greitt skatta og byggt upp samfélagið þurfi á efri árum að velja á milli matar, lyfja og húsaleigu? Við skulum kalla hlutina réttum nöfnum. Þetta er fátækt og hún er óásættanleg. Það er auðvelt fyrir stjórnmálamenn að tala um góðæri, hagvöxt og aukinn kaupmátt. En þær yfirlýsingar eru lítils virði fyrir þann eldri borgara sem á ekki fyrir nauðsynjum þegar líður á mánuðinn. Eldri borgarar sem hafa lægstu tekjurnar eiga sjaldnast raunhæfan möguleika á að bæta stöðu sína með aukinni atvinnuþátttöku. Þeir eru algjörlega háðir lífeyrisgreiðslum og ákvörðunum Alþingis um afkomu sína. Þess vegna er ábyrgð stjórnvalda ótvíræð. Fimm kröfur sem þola enga bið LEB hefur sett fram skýrar áherslur fyrir starfsárið 2026–2027. Þar eru fimm verkefni sem verða að njóta forgangs. 1. Sérstök mánaðarleg uppbót til þeirra tekjulægstu. Þetta er brýnasta krafan. Tekjulægstu eldri borgararnir þurfa sérstaka mánaðarlega uppbót með sambærilegum hætti og aldursuppbót öryrkja. Það er engin réttlæting fyrir því að þeir sem minnst hafa þurfi að bíða árum saman eftir raunverulegum kjarabótum. Hér geta stjórnvöld gripið til markvissra aðgerða strax. 2. Almenna frítekjumarkið verði að minnsta kosti 100.000 krónur á mánuði. Núverandi frítekjumark er allt of lágt. Það er fráleitt að skerða lífeyri fólks svo harkalega vegna hóflegra viðbótartekna. Eldri borgarar eiga að geta bætt afkomu sína án þess að stór hluti viðbótarteknanna hverfi í skerðingar. Hér geta stórnvöld jafnframt gripið til aðgerða strax, eins og þau sýndu með öryrkja. 3. Sérstakt frítekjumark fjármagnstekna verði að veruleika. Það er skýrt fyrirheit í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að setja sérstakt frítekjumark á fjármagnstekjur. Við það verður að standa. Fólki sem hefur sýnt ráðdeild og lagt fyrir til efri áranna á ekki að refsa með skerðingum á lífeyri. Sparnaður á að skapa öryggi, og lágmarks krafa að fólk megi eiga fyrir útför sinni. 4. Bilinu milli grunnlífeyris og lægstu launa verði lokað. Tenging grunnlífeyris við launavísitölu er stór sigur, en hún eyðir ekki því bili sem þegar hefur myndast. Það þarf sérstakar aðgerðir til að tryggja að eldri borgarar með lægstu tekjurnar dragist ekki áfram aftur úr öðrum þjóðfélagshópum. Við eigum ekki að sætta okkur við að grunnlífeyrir tryggi ekki mannsæmandi afkomu. 5. Húsnæðisöryggi verði tryggt. Enginn eldri borgari á að þurfa að verja meirihluta ráðstöfunartekna sinna í húsaleigu. LEB hefur lagt áherslu á að húsnæðiskostnaður verði ekki meiri en 25% ráðstöfunartekna. Það þarf að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum og tryggja óhagnaðardrifnum húsnæðisfélögum aðgang að lóðum. Öruggt húsnæði er ekki munaður heldur grundvallarforsenda mannsæmandi lífs. Nú verða stjórnvöld að sýna viljann í verki Það er afar jákvætt að núverandi stjórnvöld hafi tekið undir ýmsar kröfur LEB og að mikilvægar breytingar hafi náð fram að ganga. Fyrir það ber að þakka. LEB hefur sýnt að samtökin geta náð árangri ekki síst þegar stjórnvöld eru okkur hliðholl. Við höfum haft áhrif á lagasetningu, knúið fram réttarbætur og gert rödd eldri borgara sterkari. Það er mikilvægt veganesti fyrir næstu verkefni. En stærsti sigurinn er enn óunninn. Hann verður ekki unninn fyrr en þeir eldri borgarar sem minnst hafa geta lifað með reisn, án stöðugra fjárhagsáhyggna og ótta við næstu mánaðamót. Það er ekki skortur á fjármunum sem kemur í veg fyrir að við bætum hag þeirra verst settu. Það er fyrst og fremst spurning um pólitíska forgangsröðun. Við sem störfum innan LEB ætlum að halda áfram að berjast af fullum krafti. Við fögnum þeim sigrum sem náðst hafa, en við ætlum ekki að sætta okkur við að þúsundir eldri borgara séu skildir eftir. Það er ekki ölmusa sem eldri borgarar fara fram á. Það er réttlæti, virðing og mannsæmandi lífskjör. Höfundur er formaður Landssambands eldri borgara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Snæbjörnsson Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun