Þrír þéttir karlar auk Bryndísar verja sín vígi í Kraganum Jakob Bjarnar skrifar 10. júní 2021 13:24 Um helgina verður tekist á í prófkjöri Sjálfstæðismanna, í Kraganum, kjördæmi Bjarna Benediktssonar formanns flokksins. Þetta er kjördæmi sem leynir á sér og fylgjast margir spenntir með. vísir Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, sem jafnan er kallað Kraginn, fyrir alþingiskosningar 2021 fer fram nú um helgina.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Kraganum eru sem stendur Bjarni Benediktsson (1. þingmaður), Bryndís Haraldsdóttir (2. þingmaður), Jón Gunnarsson (5. þingmaður) og Óli Björn Kárason (10. þingmaður). Öll fjögur gefa kost á sér til áframhaldandi setu. Þetta prófkjör leynir á sér og er spennandi, ef að er gáð. Kvenfólk sækir í sig veðrið Sé reynt er að ráða í kall tímans þá hefur veruleg kvenfrelsisvæðing átt sér stað víða í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins. Þannig sigraði Guðrún Hafsteinsdóttir kennd við Kjörís örugglega í prófkjöri í Suðurkjördæmi og skaut þar Vilhjálmi Árnasyni þingmanni ref fyrir rass, Guðlaugur Þór Þórðarson sigraði vissulega í prófkjöri flokksins í Reykjavík en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir velgdi honum verulega undir uggum og í þriðja varð Diljá Mist Einarsdóttir og því fjórða Hildur Sverrisdóttir. Brynjar Níelsson, að eigin sögn meðlimur í Fýlupúkafélaginu, mátti sætta sig við fimmta sætið og er hættur, farinn auk Sigríðar Á. Andersen. Áhugafólk um stjórnmál les í það þau tíðindi að íhaldssöm frjálshyggja eigi undir högg að sækja í flokknum. Hvort það muni hafa áhrif á uppstillingu á lista Sjálfstæðisflokksins í Kraganum er svo spurningin. Hið svokallaða fýlupúkafélag Sjálfstæðisflokksins. Á myndina vantar Brynjar Níelsson, Óla Björn Kárason og Pál Magnússon. Ásmundur Friðriksson er í baráttusæti í Suðurkjördæmi, Haraldur Benediktsson á eftir að fara í prófkjör í Norðvesturkjördæmi, en Jón Gunnarsson berst fyrir sínu pólitíska lífi nú um helgina. Njáll Trausti er hins vegar kominn í hús.vísir/vilhelm Í Norðausturkjördæmi stóð Njáll Trausti Friðbergsson þingmaður uppi sem sigurvegari en þær Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Berglind Harpa Svavarsdóttir hlutu góða kosningu. Að teknu tilliti til þessara dæma, niðurstöðu úr þeim prófkjörum sem er lokið, er ekki er úr vegi að ætla að flokksforystan styðji þessa þróun en Sjálfstæðisflokknum hefur lengi verið legið á hálsi að vera karlalegur. En það verður að segjast að í kjördæmi sjálfs formannsins, Bjarna Benediktssonar, bendir flest til þess að karlarnir ætli að vera þéttir fyrir á fleti. Alls bárust 12 framboð, 5 konur og 7 karlar. Heimildir Vísis úr Valhöll herma að erfitt verði að fella þingmennina en það kemur í ljós um helgina. Þeir sem gera sig líklega Sá sem helst hefur vakið athygli úr röðum frambjóðenda er Arnar Þór Jónasson héraðsdómari en hann hefur verið duglegur við að viðra skoðanir sínar í greinaskrifum að undanförnu sem draga dám af frjálshyggju. Hugsanlegt er talið að hann muni njóta þess að Brynjar hlaut ekki brautargengi í Reykjavík – að það verði metið svo að slíkum sjónarmiðum verði að halda til haga innan flokksins. Og þá hefur gamall kappi gefið sig fram, Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur og fyrrverandi alþingismaður. Aðrir karlar í framboði eru svo Bergur Þorri Benjamínsson formaður Sjálfsbjargar og Hannes Þórður Þorvaldsson lyfjafræðingur. En eftir því sem Vísir kemst næst, í ljósi þess sem áður segir, fylgjast Sjálfstæðismenn spenntir með gengi þeirra kvenna sem gefið hafa sig fram en þær koma einkum af sveitarstjórnarstiginu, úr Hafnarfirði og Kópavogi: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir varabæjarfulltrúi, Karen Elísabet Halldórsdóttir bæjarfulltrúi, Kristín Thoroddsen bæjarfulltrúi og Sigþrúður Ármann lögfræðingur og framkvæmdastjóri, formaður Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ. Bjarni Benediktsson. Tekist verður á í kjördæmi formannsins um helgina í prófkjöri sem leynir á sér. Ef að er gáð er ekki víst að þingmenn flokksins sigli lygnan sjó í þeim slag.Vísir/Vilhelm Það sem menn rýna helst í er sú staðreynd að það sé prófkjör en ekki uppstilling. Í það er lesið að undirliggjandi sé einhvers konar óánægja, í það minnsta krafa um breytingar. Og þar takast á íhaldssemi og það sem kennt hefur verið við frjálslyndi. Garðbæingarnir vildu gjarnan hafa uppstillingu en að kröfu Hafnfirðinga og þá Kópavogsbúa var orðið við því að prófkjör yrði. Samkvæmt heimildum Vísis er talið að Bjarni hafi fallist á það ekki síst til að taka púlsinn á raunverulegum styrk Jóns Gunnarssonar, sem mun hafa viljað uppstillingu.
Fréttaskýringar Alþingiskosningar 2021 Sjálfstæðisflokkurinn Suðvesturkjördæmi Tengdar fréttir Barist í hinu alltof stóra og skrítna Suðurkjördæmi Nokkur spenna er að myndast um það hver hreppir oddvitasæti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. 28. maí 2021 12:14 Sjálfstæðismenn velja tvo nýja oddvita í dag Úrslit ráðast í tveimur prófkjörum Sjálfstæðisflokksins í dag, annars vegar í Suðurkjördæmi og hins vegar í Norðausturkjördæmi. Hart er barist um oddvitasætið í báðum kjördæmum þar sem fyrri oddvitar gáfu ekki kost á sér. 29. maí 2021 10:32 Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fleiri fréttir Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Illa lagður pallbíll upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Sjá meira
Barist í hinu alltof stóra og skrítna Suðurkjördæmi Nokkur spenna er að myndast um það hver hreppir oddvitasæti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. 28. maí 2021 12:14
Sjálfstæðismenn velja tvo nýja oddvita í dag Úrslit ráðast í tveimur prófkjörum Sjálfstæðisflokksins í dag, annars vegar í Suðurkjördæmi og hins vegar í Norðausturkjördæmi. Hart er barist um oddvitasætið í báðum kjördæmum þar sem fyrri oddvitar gáfu ekki kost á sér. 29. maí 2021 10:32