Ekkert bólar á skýrslu um skipulag og framkvæmd leghálskimana Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. júní 2021 07:26 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól Haraldi Briem, fyrrverandi sóttvarnalækni, að semja skýrsluna. Enn bólar ekkert á skýrslu um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi sem 26 þingmenn óskuðu eftir frá heilbrigðisráðherra.
Skýrslubeiðnin var samþykkt 2. mars síðastliðinn og hafði ráðherra tíu vikur til að svara. Það var hins vegar ekki fyrr en 10. maí að tilkynnt var að Haraldi Briem, fyrrverandi sóttvarnalækni, yrði falið að vinna skýrsluna. „Verkefnið var einfalt og ef vilji hefði staðið til þess af hálfu heilbrigðisráðherra hefðu konur fengið þessi svör sem kallað var eftir fyrir löngu. Svör um það hvernig tryggja átti öryggi kvenna við skipulagsbreytingar á grundvallarheilbrigðisþjónustu. Svör um það hvaða fagaðilar það voru innan heilbrigðiskerfisins sem ráðlögðu ráðherra að fara þessa leið. Vinnan hefur hefur hins vegar dregist svo mjög að nú blasir við að þingið mun sennilega ekki hafa tíma til að ræða efni skýrslunnar þegar hún kemur fram. Afleiðingin er sú að mikilvægt samtal um skimun fyrir leghálskrabbameini mun sennilega ekki eiga sér stað inni í þingsal,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, í samtali við Vísi seint í gærkvöldi. Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirVísir/Vilhelm Snýst um réttmætar áhyggjur notenda þjónustunnar Enn hefur ekkert verið ákveðið um þinglok. Samkvæmt heimildum Vísis hefur skýrslan hins vegar legið fyrir í nokkra daga en tafir verið á birtingu hennar vegna frágangs. Að sögn Þorbjargar átti að birta skýrsluna í gær en nú berast þær upplýsingar að hún verði birt í dag. „Það hefur komið fram að skýrslan er tilbúin og sé væntanleg. Það getur varla tekið marga daga að skila henni af sér, þegar hún liggur klár. Það hefði þjónað hagsmunum allra þeirra sem vilja svör um þessar breytingar og svör um öryggi þjónustunnar ef samtalið fengi að eiga sér stað. Málið snýst auðvitað um það; þær réttmætu áhyggjur sem notendur þjónustunnar hafa sem og margir fagaðilar innan kerfisins. Það er því miður gegnumgangandi stef að ráðherrar þessar stjórnar virðast draga að skila skýrslum til þingsins. Það er alvarleg staða,“ segir Þorbjörg. Samkvæmt skýrslubeiðninni er eftirfarandi upplýsinga óskað, meðal annars: Forsendur að baki þeirri ákvörðun að semja við erlenda rannsóknarstofu um að sinna greiningu á sýnum. Fjallað verði um samráð af hálfu heilbrigðisráðuneytisins í ferlinu, við hverja hafi verið haft samráð áður en ákveðið var að fela Hvidovre-sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn verkefnið og hver afstaða einstakra aðila hafi verið til þess að flytja greiningu á sýnum til útlanda. Áhrif á aðgengi að sýnum fyrir sérfræðinga innan heilbrigðiskerfisins hérlendis og á kostnað við greiningu leghálssýna. Hvort og þá hvernig heilbrigðisráðuneytið hafi lagt mat á greiningargetu meinafræðideildar Landspítala í tengslum við skimun fyrir leghálskrabbameini. Áhrif breytinganna á öryggi skimunar, m.a. vegna aðgengis, flutninga og samskipta milli landa. Áhrif breytinganna á sérhæfð störf við greiningu sýna vegna krabbameinsskimunar á Íslandi, þar á meðal hvort einhver störf glatist og þá hversu mörg, áhrif á sérfræðiþekkingu hérlendis við þessar breytingar og hver áhrif kunna að verða á aðra rannsóknar- og greiningarvinnu hérlendis.
Skimun fyrir krabbameini Heilbrigðismál Tengdar fréttir Tímafrekt að senda sýnin utan og svartíminn of langur Of mikill tími fór í merkingar og pökkun sýna, sendingartíminn var oft langur og þá voru íslensku sýnin ekki í neinum forgangi og svartíminn í heild of langur. Þetta segir Auður Eiríksdóttir, lífeindafræðingur og fyrrverandi deildarstjóri Frumurannsóknarstofu Krabbameinsfélags Íslands, um reynsluna af því að láta rannsóknarstofu í Svíþjóð sjá um HPV-rannsóknir á leghálssýnum. 3. júní 2021 11:08 „Konur geta ekki pantað skimun að eigin ósk“ segir landlæknir Ef ágreiningur skapast milli lækna um framkvæmd krabbameinsskimana væntir landlæknir þess að hlutaðeigandi ræði málin og komist að sameiginlegri niðurstöðu þannig að öryggi konunnar sé gætt. 3. júní 2021 08:54 Stöðvaði rannsókn sem kvensjúkdómalæknir óskaði eftir Bryndís Sigurðardóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti sín við Kristján Oddsson, verkefnastjóra Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir Kristján hafa hafnað því að láta rannsaka leghálssýni sem kvensjúkdómalæknir hennar tók fyrr í þessum mánuði. 1. júní 2021 08:10 Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Sjá meira
Tímafrekt að senda sýnin utan og svartíminn of langur Of mikill tími fór í merkingar og pökkun sýna, sendingartíminn var oft langur og þá voru íslensku sýnin ekki í neinum forgangi og svartíminn í heild of langur. Þetta segir Auður Eiríksdóttir, lífeindafræðingur og fyrrverandi deildarstjóri Frumurannsóknarstofu Krabbameinsfélags Íslands, um reynsluna af því að láta rannsóknarstofu í Svíþjóð sjá um HPV-rannsóknir á leghálssýnum. 3. júní 2021 11:08
„Konur geta ekki pantað skimun að eigin ósk“ segir landlæknir Ef ágreiningur skapast milli lækna um framkvæmd krabbameinsskimana væntir landlæknir þess að hlutaðeigandi ræði málin og komist að sameiginlegri niðurstöðu þannig að öryggi konunnar sé gætt. 3. júní 2021 08:54
Stöðvaði rannsókn sem kvensjúkdómalæknir óskaði eftir Bryndís Sigurðardóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti sín við Kristján Oddsson, verkefnastjóra Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir Kristján hafa hafnað því að láta rannsaka leghálssýni sem kvensjúkdómalæknir hennar tók fyrr í þessum mánuði. 1. júní 2021 08:10