NBA dagsins: Stjarna Atlanta steig á dómarann og gaf Middleton sviðsljósið Sindri Sverrisson skrifar 28. júní 2021 15:16 Trae Young meiddist á ökkla í leiknum við Milwaukee. Getty/Curtis Compton Það hafði sín áhrif á einvígi Atlanta Hawks og Milwaukee Bucks að Trae Young, stjarna Atlanta, skyldi meiðast með heldur óvenjulegum hætti í leik liðanna í nótt. Milwaukee vann leikinn 113-102 eftir stórleik Khris Middleton.
Í NBA dagsins hér á Vísi má sjá þegar Young steig óvart aftur fyrir sig á dómara með þeim afleiðingum að hann meiddist í ökkla. Atlanta hafði haft forystuna svo til allan leikinn þegar Young meiddist, rétt fyrir lok þriðja leikhluta, en hann skoraði aðeins þrjú af 35 stigum sínum í lokaleikhlutanum. „Þetta er aumt núna. Ég finn til og þetta er svekkjandi. Ég fékk einhverja meðhöndlun og fæ frekari meðhöndlun [í dag]. Það er allt og sumt sem hægt er að gera núna,“ sagði Young sem vonast til að honum líði betur í fjórða leik einvígisins, annað kvöld. Meiðsli hans og svipmyndir úr leiknum í nótt má sjá hér að neðan. Klippa: NBA dagsins 28. júní Milwaukee komst í 2-1 í einvíginu og það er að mestu Middleton að þakka en hann skoraði 20 stig í fjórða leikhluta, þremur fleiri en allt Atlanta-liðið til samans. Alls skoraði Middleton 38 stig og hefur ekki skorað fleiri í leik í úrslitakeppni. Giannis Antetokounmpo skoraði 33 stig og tók 11 fráköst líkt og Middleton. Danilo Gallinari var næststigahæstur í liði Atlanta, á eftir Young, með 18 stig.
NBA Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira