Innlent

Heilsugæslan boðar rannsóknir á Landspítala en ekki fyrr en næstu áramót

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þriggja mánaða uppsagnarfrestur er á samningnum við Hvidovre.
Þriggja mánaða uppsagnarfrestur er á samningnum við Hvidovre. BD

Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að hefja undirbúning þess að flytja rannsóknir á leghálssýnum aftur heim til Íslands, nánar tiltekið á Landspítala. Ákvörðunin er tekin í samráði við heilbrigðisráðuneytið.

Í tilkynningu frá heilsugæslunni segir að hún byggist á því að Landspítalinn telji sig nú geta sinnt rannsóknunum en einnig sé verið að koma til móts við athugasemdir fagaðila og almennings.

Þess ber að geta að það lá fyrir í nóvember á síðasta ári, tveimur til þremur mánuðum áður en gengið var frá samningum við Hvidovre-sjúkrahúsið, að spítalinn gæti sinnt verkefninu. Sagðist spítalinn á þeim tíma meðal annars getað tekið nánast strax við HPV-greiningum.

„Áður en af flutningi verður er mikilvægt að öllum undirbúningi sé lokið og öllum nauðsynlegum forsendum fullnægt, hvort sem er HPV mælingar eða skoðun frumusýna.

Embætti Landlæknis hefur metið forsendur flutnings og bent á hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að Landspítali geti tekið að sér rannsóknir leghálssýna. Undirbúningur flutnings mun taka mið af forsendum og skilyrðum EL.

Flutningur rannsókna leghálssýna verður unninn í samráði við helstu aðila sem koma að skimun leghálssýna, ss. Landspítali, sérfræðingar í kvensjúkdómum.

Lögð er áhersla á að skimunarskrá verði tilbúin til notkunar enda er skimunarskrá mikilvæg og lykilatriði við allar skimanir,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að undirbúningur hefjist nú þegar en stefnt sé að því að Landspítalinn taki við verkefninu um áramótin, „að því gefnu að unnt reynist að uppfylla allar kröfur fyrir þann tíma“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×