Viðskipti innlent

Annar ársfjórðungur Arion umfram spár

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Arion banki er á siglingu.
Arion banki er á siglingu. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Samkvæmt drögum að uppgjöri Arion banka fyrir annan ársfjórðung 2021 er afkoma bankans umtalsvert umfram spár greiningaraðila á markaði.

Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til kauphallar þar sem segir að samkvæmt drögunum sé afkoma fjórðungsins um 7,8 milljarðar króna og reiknuð arðsemi á ársgrundvelli ríflega sextán prósent.

Rekstrartekjur fjórðungsins nemi um 15 milljörðum króna, þar af séu tekjur af kjarnastarfsemi (hreinar vaxtatekjur, hreinar þóknanatekjur og hreinar tekjur af tryggingastarfsemi) um 12 milljarðar króna. Hækka þær um 10,5 prósent frá öðrum ársfjórðungi 2020. Rekstrarkostnaður fjórðungsins nemur ríflega 6 milljörðum króna.

„Stærsta breytingin milli ára liggur í virðisbreytingu útlána sem var jákvæð um 0,8 milljarð króna á öðrum ársfjórðungi 2021 en á sama tíma fyrir ári var virðisbreyting neikvæð um 0,9 milljarð króna og tengdist að mestu þeirri óvissu sem uppi var vegna COVID-19 faraldursins. Hreinar þóknanatekjur á öðrum ársfjórðungi 2021 námu 3,6 milljörðum króna, samanborið við 2,7 milljarða króna á sama tíma í fyrra,“ segir í tilkynningunni.

Tekið er þó fram að uppgjörið sé enn í vinnslu og könnunarvinnu endurskoðenda ekki lokið, því kunni uppgjörið að taka breytingum fram að birtingardegi þess, þann 28. júlí næstkomandi.


Tengdar fréttir

Stjórnendur Arion banka telji eigin bréf vanmetin

Arion banki hefur fengið heimild frá Fjármálaeftirlitinu til kaupa á eigin bréfum fyrir um 8 milljarða króna. Lektor í fjármálum segir þetta til marks um að þrátt fyrir miklar hækkanir á virði bréfa í bankanum, telji stjórnendur bréfin enn vanmetin.

Aðeins tvö útibú Arion banka eftir á höfuðborgarsvæðinu

Aðeins tvö útibú Arion banka eru eftir á höfuðborgarsvæðinu en útibú bankans í Kringlunni lokaði á dögunum. Ekki er langt um liðið frá því að útibú Arion banka að Borgartúni 18 lokaði en þar er starfsendurhæfingarsjóður VIRK nú til húsa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×