Skoðun

Tökum vel á móti fólki

Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar

Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði teljum að fjölbreytileiki sé styrkur hvers samfélags og því eigi að taka þeim fagnandi sem hingað koma, óháð uppruna eða þeim forsendum sem dvölin byggir á. Nauðsynlegt er að opnar séu ólíkar leiðir fyrir fólk í ólíkum aðstæðum til að setjast að hér á landi og auðvelda þarf ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins að koma hingað til leiks og starfa. Samhliða þarf að berjast gegn mismunun og misnotkun á vinnumarkaði af fullri hörku, því allt fólk sem starfar á Íslandi á að sjálfsögðu að njóta fullra réttinda.

Málefni og aðstæður flóttafólks eru meðal stærstu viðfangsefna sem heimsbyggðin verður að takast á við. Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum. Stríðsátök og ófriður hrekja marga að heiman og sífellt stækkandi hópur tekur sig upp því loftslagsbreytingar hafa gert það að verkum að fólk kemst ekki lengur af heima hjá sér. Þessi alvarlega staða á ekki og má ekki vera einkavandamál flóttafólks og einstakra landa, sem vegna legu sinnar á landakortinu fá til sín fjölda fólks.

Ísland á að taka vel á móti fólki á flótta. Við höfum sýnt það í gegnum tíðina að með því að bjóða hingað fólki og aðstoða það við að setjast að og verða þátttakendur í íslensku samfélagi getum við sem samfélag gert frábæra hluti. Við eigum að halda því áfram og taka á móti enn fleiri kvótaflóttamönnum. Þar er mikilvægt að horfa sértaklega til fólks sem er í viðkvæmri stöðu.

Jafnframt þarf að standa vörð um upphaflegan tilgang Dyflinarsamstarfsins, um að aðildarríki deili ábyrgð vegna komu fólks á flótta til Evrópu. Skilvirkni kerfisins má aldrei vera á kostnað mannúðar- og réttlætissjónarmiða. Við í Vinstri grænum viljum efla samstarf ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fólk flótta og aðra innflytjendur. Þá þarf að skipta Útlendingastofnun upp og skilja á milli stjórnsýslu umsókna annars vegar og þjónustu við fólk á flótta hins vegar.

Réttlátt og öflugt samfélag nýtur hæfileika og þekkingar allra óháð uppruna. Fordómar sem byggja á trúarbrögðum eða uppruna eiga ekki að vera liðnir, né heldur framkoma sem felur í sér hatur og tortryggni gagnvart innflytjendum. Höldum áfram að vinna að þannig samfélagi og tökum vel á móti fólki sem hingað kemur.

Höfundur er þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs




Skoðun

Sjá meira


×