Sektaðar fyrir að spila í stuttbuxum en ekki bikiníi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júlí 2021 09:31 Reglur um klæðaburð á mótum í strandhandbolta eru mjög strangar. getty/Ilnar Tukhbatov Norska kvennalandsliðið í strandhandbolta lét á það reyna að spila í stuttbuxum í lokaleik sínum á EM í Búlgaríu og var refsað fyrir.
Norðmenn hafa staðið í stappi við EHF, evrópska handknattleikssambandið, vegna reglna um klæðaburð á mótum í strandhandbolta. Samkvæmt reglunum þurfa konur að spila í bikiníi á meðan karlar klæðast hlýrabolum og stuttbuxum. Norska handknattleikssambandið óskaði eftir því að fá að spila í stuttbuxum á EM. Fyrst var því hótað sektum, sem það var tilbúið að borga, en fyrir fyrsta leikinn á EM var sektin skyndilega hækkuð og því hótað frekari refsingum, meðal annars að liðinu yrði hent úr keppni. Norska liðið gaf þá eftir. Í viðureigninni gegn Spáni um 3. sætið á EM mætti norska liðið til leiks í stuttbuxum eins og þær óskuðu eftir því að spila í fyrir mót. Það mæltist ekki vel fyrir hjá EHF sem sektaði norska liðið um samtals 1.500 evrur, eða rétt rúmlega 220 þúsund íslenskar krónur. Hver leikmaður í norska liðinu var sektaður um 150 evrur en fyrir mót átti sú sekt að vera fimmtíu evrur fyrir hvern leikmann. Spánn vann Noreg í leiknum um bronsið en Þýskaland stóð uppi sem Evrópumeistari eftir sigur á Danmörku.
Norski handboltinn Handbolti Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira