Gosið hrekkjótt og lætur vísindamenn hafa fyrir sér Jakob Bjarnar skrifar 29. júlí 2021 15:07 Þeir sem töldu að nú væru síðustu forvöð að sjá gosið á Reykjanesi geta enn dregið það að fara. Eða svo virðist vera eins og staðan er nú, gosið er í góðum gír. vísir/vilhelm Eftir að verulega hafði sljákkað í gosinu á Reykjanesi og margir farnir að sjá fyrir sér að það væri við að lognast út af hefur það tekið verulega við sér síðasta sólarhringinn.
Engan bilbug virðist vera að finna á eldgosinu í Fagradalsfjalli, það er í stuði. Fjöldi netverja hafa birt myndir á samfélagsmiðlum af bjarma sem stafar frá gosinu sem blasti við af höfuðborgarsvæðinu í gær. Og ljóst að það lætur engan bilbug á sér finna. Í uppfærslu á yfirliti yfir hraunflæðið á vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands er farið yfir stöðuna eins og hún blasir við nú. „Í yfirliti þann 22. júlí var frá því greint að hraunrennsli hefði minnkað fyrir hluta júlímánaðar og ef sú þróun héldi áfram stefndi í að gosið fjari út. Nýjustu mælingarnar þann 27. júlí sýna að þessi þróun hefur snúist við. Hraunrennslið hefur aukist aftur og er sennilega jafnmikið nú eða meira en var þegar mest var í júní.“ Gosið greinilega að gefa eftir en það var þá Óvissa í mati á rennsli síðustu 7-10 daga eru hinsvegar sögð of mikil til að hægt sé að setja fram áreiðanlega tölu. Tekið er fram að mælingarnar sýna rúmmál og breytingar á því. „Eðlismassi hrauns getur verið breytilegur og á það hefur verið bent að t.d. næst gígum sé holrými meira en fjær.“ Því er af hálfu vísindamanna við Háskólann ekki gerð tilraun til að meta þau áhrif, að finna jafngilt rúmmál þétt bergs eða massa hraunsins. Þumalputtareglan er sú að rúmmál þétt bergs sé um 80 prósent af heildarrúmmáli líklegt að svo sé um hraunið í Meradölum, Geldingadölum og Nátthaga en að holrými sé meira næst gígnum. Ekki er langt síðan sagðar voru fréttir af því að líklega væri gosið að fjara út. En gosið sjálft er ekki á þeim buxunum og gefur þeim sem gáfu út hálfgildings dánarvottorð langt nef. „Gosvirknin breyttist í lok júní. Þá tók virknin að sveiflast milli tímabila með öflugu hraunrennsli og síðan kyrrum tímabilum á milli. Mælingarnar nú sýna að hraunflæði hefur dregist verulega saman. Gosið er því greinilega minnkandi,“ sagði í sambærilegu yfirliti sem Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands sendi frá sér fyrr í mánuðinum. Gosið ólíkt þeim sem við þekkjum frá undanförnum áratugum En nú er staðan orðin önnur enda er gosið í Fagradalsfjalli um margt frábrugðið þeim gosum sem við þekkjum frá undanförnum áratugum, sem hafa átt upptök í kvikuhólfum undir megineldstöðvum þar sem þrýstingur í hólfinu og stærð þess virðist ráða mestu um stærð og lengd goss. Vísindamaðurinn Magnús Tumi Guðmundsson er einn af höfundum yfirlitsins.vísir/vilhelm „Í Fagradalsfjalli virðist þessu vera nokkuð öðruvísi varið. Þar er svo að sjá að aðstreymisæðin og eiginleikar hennar ráði mestu um kvikuflæðið. Rásin sem opnaðist var tiltölulega þröng og löng (nær niður á ~17 km dýpi) og flutningsgetan takmörkuð. Aukning í hraunflæði með tíma fyrstu sex vikurnar bendir til þess að rásin hafi víkkað heldur með tímanum, sennilega vegna rofs í veggjum hennar,“ segir í yfirlitinu. Þá er bent sérstaklega á að hegun gossins frá því í lok júní sé einkar athyglisverð. „Rennsli var heldur minna fyrri hluta mánaðarins en var í júní en virðist svo hafa aukist aftur samfara því að regla komst á kviðuvirknina um miðjan mánuðinn. Forsendur hafa því breyst frá því síðasta mat var gert.“ Þá segir sá sem skrifar skýrsluna, nánast mæðulega, að ekki sé hægt að segja til um hvenær þessu gosi lýkur. „Við þurfum bara að bíða og sjá.
Eldgos í Fagradalsfjalli Háskólar Vísindi Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent Fleiri fréttir Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavístölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði ekki húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Sjá meira