Innlent

Draumur rættist í gær: „Það væri nú gaman að prufa þetta einu sinni með fólki“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrði brekkusöng fyrir tómum Herjólfsdal í gær.
Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrði brekkusöng fyrir tómum Herjólfsdal í gær. Vísir/Stöð 2

Þetta var algjör heiður, segir Magnús Kjartan Eyjólfsson um brekkusönginn sem hann stýrði í fyrsta sinn í gær. Hann segir upplifunina stórkostlega og væri tilbúinn til að stýra söngnum aftur að ári. 

Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrði brekkusöngnum í Herjólfsdal í fyrsta sinn í gærkvöldi. Landinn virðist hafa verið ánægður með flutning Magnúsar ef marka má samfélagsmiðilinn Twitter þar sem honum var mikið hrósað. 

Öðru máli fer um útsendinguna sjálfa en fólk á miðlinum kvartaði yfir tæknilegum örðugleikum. Magnús segir að upplifunin hafi verið ótrúleg.

„Það er mjög erfitt að lýsa þessu en ég fann það bara þegar ég steig upp á svið að mér leið alveg ofsalega vel. Mér fannst þetta eitthvað svo rétt á tímapunktinum.“

Draumur rættist í gær

Það hafi lengi verið draumur að stýra brekkusöngnum í Herjólfsdal.

„Ég hef stjórnað brekkusöng áður en þetta er náttúrulega sá stærsti þannig að það er rosalegur heiður að fá að taka þetta að sér. Og stjórna þessu þó að örugglega hefði það verið aðeins öðruvísi með tuttugu þúsund manns fyrir framan sig ég segi það ekki, en þetta var mjög, mjög, mjög gaman.“

Mikið var lagt í útsendinguna og komu allt að sextíu manns að henni.

„Crewið byrjaði að tínast hingað inn fyrir tveimur dögum þannig að þetta er svakalegt umfang og þetta er helvíti stór ákvörðun að ákveða að kýla á þetta í fullri stærð. Hálfgert brjálæði en samt mjög gaman að þetta sé að gerast svona. Mjög áhugavert,“ sagði Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu í samtali við fréttastofu í gær.

Rætt var við Magnús í hádegisfréttum Bylgjunnar.

„Færð einhverja tilfinningu í iðrin sem maður getur ekki lýst“

Hann segir umhverfið stórkostlegt.

„Þessi Herjólfsdalur er einhver magnaðasti tónleikasalur sem Íslendingar eiga. Ákveðin synd að hann sé ekki notaður meira. En það er kannski eitthvað útfærsluatriði. Að vera þarna og horfa upp í brekkuna og ég tala nú ekki um þegar hún er full af fólki. Jafnvel líka þegar hún er ekki full af fólki. Þú færð einhverja tilfinningu í iðrin sem maður hreinlega getur ekki lýst.“

Gerði þetta með hjartanu

Magnús segir ekkert mál að syngja fyrir tómri brekku.

„Ég reyndi að tækla þetta þannig að þegar ég var krakki þá var ég alltaf að synja og með ímyndað fólk fyrir framan mig og ég þurfti bara að ganga í barndóm aftur og rifja það upp hvernig var að vera barn og gera þetta með hjartanu og þá var þetta ekkert mál.“

Klár í slaginn að ári

Hvernig er það, munt þú stýra brekkusöngnum aftur að ári?

„Það er bara ekkert farið að ræða það enn.“

En værir þú til í það?

„Ég væri alveg til í það. Það væri nú gaman að prufa þetta einu sinni með fólki.“


Tengdar fréttir

Vonar að kindurnar í dalnum jarmi undir með sér

Brekkusöngur á Þjóðhátíð fer fram í fyrsta sinn fyrir tómri brekkunni í kvöld. Hátt í sextíu manns hafa unnið að uppsetningu enda var ákveðið að bjóða upp á dagskrá í fullri stærð og svo getur fólk keypt sér aðgang að streymi.

Magnús Kjartan Eyjólfs­son stýrir Brekku­söngnum

Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins, mun stýra Brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Brekkusöngurinn fer fram árlega á sunnudagskvöldi Þjóðhátíðar á stóra sviðinu í Herjólfsdal, sem verður þann 1. ágúst næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×