Innlent

Skandinavísk flug­fé­lög af­nema grímu­skyldu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Fjögur skandinavísk flugfélög, þar á meðal SAS, hafa afnumið grímuskyldu í flugferðum til og frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Fjögur skandinavísk flugfélög, þar á meðal SAS, hafa afnumið grímuskyldu í flugferðum til og frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. EPA/MAURITZ ANTIN

Fjögur skandinavísk flugfélög hafa afnumið grímuskyldu um borð í flugvélum í meirihluta flugferða. Forstjóri Icelandair segir ómögulegt að spá um hvenær grímuskyldu verður aflétt í flugvélum félagsins. 

Farþegar á leið milli Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, sem hyggjast ferðast með SAS, Norwegian, Widerøe og Flyr geta því skilið grímurnar eftir heima frá og með deginum í dag.

Þessi breyting hjá flugfélögunum var kynnt í kjölfar þess að nær öllum takmörkunum var aflétt í nágrannalöndum okkar þremur: Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Daglegum smitum og spítalainnlögnum hefur farið fækkandi undanfarnar vikur og stórir meirihlutar þjóðanna þriggja þegar bólusettir. Forbes greinir frá. 

„Við trúum því að það sé komið að þessu miðað við smitstöðuna í landinu,“ sagði John Eckhoff, upplýsingafulltrúi SAS, í samtali við TV2 í Noregi.

Grímunotkun er að sjálfsögðu valkvæð og geta þeir, sem ekki vilja sleppa grímunni, því borið hana áfram eins og víða annars staðar. En þó að grímunotkun sé orðin valkvæð um borð í vélunum er grímuskylda enn í gildi á flugvöllum sums staðar í Skandinavíu, þar á meðal á flugvellinum í Osló.

Þá munu farþegar sem fljúga með þessum fjórum flugfélögum frá öðrum Evrópulöndum þurfa að bera grímuna áfram um borð, þar á meðal farþegar á leið til eða frá Færeyjum.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir grímuskyldu áfram um borð í flugvélum félagsins. Koma verði í ljós hvenær breytingar verði á. Hann nefndi þó í Bítinu á Bylgjunni í morgun að sjaldgæft væri að fólk smitaðist af Covid-19 í flugvélum því þar eru loftskipti tíðari en heima í stofu.

Flest flugfélög væru þó enn með grímuskyldu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×