Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, segir að með nýja nafninu sé ætlað að endurspegla áherslur félagsins á að smíða sýndarheim á netinu (e. metaverse). Zuckerberg gerir ráð fyrir því að allt að milljarður manna muni taka þátt í sýndarheiminum nýja á næstu árum. Þetta kemur fram í frétt AP News.
Forrit samfélagsmiðlarisans eins og smáforritið Facebook - sem flestir kannast við, Instagram og Messenger munu enn halda nafni sínu en undir einum hatti; hins nýja Meta.
Að sögn Zuckerberg á sýndarheimurinn að vera staður þar sem fólk getur átt í samskiptum, unnið, skapað og stofnandinn bindur vonir við að sýndarheimurinn komi til með að búa til milljónir nýrra stafa á næstu árum. Zuckerberg sér fyrir sér að fólk verði þannig virkir þátttakendur í stað þess að horfa á skjá eins og tíðkast, hver í sínu lagi.
Stofnandinn segir að gamla nafn fyrirtækisins endurspegli áherslur fyrirtækisins ekki lengur: „Nú er litið á okkur sem samfélagsmiðlafyrirtæki, en kjarni okkar er fyrirtæki sem smíðar tækni sem tengir fólk saman,“ segir Zuckerberg.
Tilkynningin kemur á viðkvæmum tíma fyrir fyrirtækið en fyrrum starfsmaður fyrirtækisins steig fram nýlega, og sagði stjórnendur samfélagsmiðlarisans hafa virt að vettugi ábendingar um að forrit Facebook væru skaðleg börnum og ælu á sundrung.