Miklubrautarstokkur og nýbyggingar við götuna. Hvað finnst þér? Ævar Harðarson skrifar 7. desember 2021 13:30 Reykjavíkurborg kallar nú eftir viðbrögðum og athugasemdum við stór skipulagsverkefni sem eru í gangi í borginni. Samráð skiptir okkur miklu máli og við erum sífellt að leita leiða til að fá fram sjónarmið sem flestra. Við viljum mæta þörfum íbúa, í því felst meðal annars að sjá fyrir framtíðarþarfir og hvernig þær verða leystar. Eitt stærsta verkefni borgarinnar er möguleg útfærsla á stokki fyrir umferð undir Miklubraut og hvernig byggð geti risið við þessa meginæð umferðar í Reykjavík. Að setja Miklubraut í veggstokk mun bæta lífsgæði íbúa í hverfum næst þessari umferðarþyngstu götu landsins og greiða för þeirra sem aka í gegnum þau. Í samráðsvinnu með íbúum á svæðinu við undirbúning hverfisskipulags Reykjavíkur hafa skoðanir þeirra komið sterkt fram. Íbúar vilja vegstokk. Stokkur mun draga úr slysahættu, loft- og hljóðmengun og gera borgarumhverfið ofanjarðar betra. Á yfirborðinu verður til rými fyrir rólega umferð og almenningssamgöngur á sama tíma og gegnumaksturinn streymir áfram í neðanjarðar. Saman mun þetta minnka umferðartafir. Fordæmi frá Þrándheimi og Ósló Hugmyndir um að setja Miklubraut í stokk eru áratuga gamlar og margreifaðar. Meðal annars var gerð grein fyrir þeim í aðalskipulagi Reykjavíkur 1996–2016, í samvinnuhópi borgarinnar og Vegagerðarinnar frá 2008 og í gildandi aðalskipulagi. Sú alvara sem nú birtist meðal annars í samgöngusáttmála er þó fyrst og fremst tilkomin vegna samráðs við íbúa í hverfum næst þessari miklu umferðargötu. Miklabraut í stokk ásamt tilheyrandi framkvæmdum á yfirborðinu er mikil og flókin aðgerð. En verkefnið er á engan hátt óyfirstíganlegt og fordæmi eru vel þekkt. Má til dæmis nefna nýlegar ganga- og stokkaframkvæmdir í Þrándheimi, en borgin er af svipaðri stærð og Reykjavík. Þar var fyrir nokkrum árum opnuð röð af veggöngumum 5,3 kílómetra löngtil að létta á bílaumferð í gegnum miðborgina. Annað nærtækt dæmi er frá Ósló, sem ég þekki vel til. Þar hófust umfangsmiklar gangaframkvæmdir um 1985 vegna þess að miðborgin var afar þjökuð af loftmengun frá útblæstri bíla. Í dag er miðborg Óslóar bæði falleg og vistvæn með mun minni bílaumferð á yfirborðinu en fyrir daga vegganganna. Þar eru fótgangandi, hjólandi og almenningssamgöngur í forgangi og mannlíf blómstar. Myndin sýnir mögulega ásýnd við Kringluna. Unnin fyrir Miklabraut í stokk - Frumathugun á þróunarmöguleikum og leiðbeiningar hverfisskipulags um borgargötur.Tripóli arkitektar Dregur úr umferðartöfum Enginn efi er í mínum huga um að þegar framkvæmdum við Miklubraut verður lokið munu lífsgæði og tilvera þúsunda íbúa batna. Í borgarhluta 3 og 5 búa í dag um 27 þúsund íbúar í um ellefu þúsund íbúðum. Umhverfis Miklubrautina eru stór uppbyggingarsvæði eins og Hlíðarendi, Kringlan og Skeifan auk vannýttra veghelgunarsvæða meðfram götunni. Á þessum svæðum geta bæst við allt að sex þúsund nýjar íbúðir fyrir um sextán þúsund íbúa ef reiknað er með 2,5 íbúum á íbúð, auk fjölda atvinnurýma. Fyrsti áfangi stokksins Fyrsti áfangi Miklubrautarstokks mun ná frá gatnamótum Miklubrautar og Snorrabrautar og að Rauðarárstíg. Í fyrra stóð Reykjavíkurborg fyrir hugmyndaleit um hvernig hægt er að útfæra uppbyggingu á og við þennan hluta stokksins. Fimm þverfaglegir hópar skiluðu tillögum, sem hægt er að skoða hér. Myndin sýnir mögulega útfærslu á yfirbygging gatnamóta Snorrabrautar og Miklubrautar. Þar mun verða til svæði með sterkum miðbæjarbrag með verslun, þjónustu og atvinnuhúsnæði í bland við íbúðir á efri hæðum af fjölbreyttri stærð og gerð.Jakob Jakobsson arkitekt Tillögurnar sýna ásýnd og uppbyggingarmöguleika nýrrar byggðar íbúða- og atvinnuhúsnæðis ofan á stokknum og í næsta nágrenni hans, og hvernig byggðin ásamt kjarnastöð Borgarlínu tengist nærliggjandi hverfum og umhverfi. Þetta eru hugmyndir sem Reykjavíkurborg hefur heimild til að vinna með áfram, breyta þeim og/eða fela öðrum útfærslu þeirra. Saman mynda þær nokkurs konar hugmyndabanki til að þróa áfram þetta mikla verkefni. Borgin kallar nú eftir skoðunum íbúa á þessum tillögum en þægilegt er að skoða þær og senda inn athugasemdir á kynningarsíðu verkefnisins. Gatnamót Háaleitisbrautar og Miklubrautar Einnig stendur nú yfir netsamráð til að kanna viðhorfi íbúa til hugmynda um mögulega útfærslu á byggð við gatnamót Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Varpað er fram hugmyndum um að reisa nýbyggingar þétt upp við götuna sem yrði nokkurs konar borgarbreiðstræti með blöndu af bílaumferð, almenningssamgöngum og gangandi og hjólandi vegfarendum í vel hönnuðu umhverfi með gróðri. Myndin sýnir mögulega nýja byggð meðfram Miklubraut við gatnamótin við Háaleitisbraut og áfram að Hvassaleiti. Nýju húsin myndu bæði bæta hljóðvist eldri byggðar, með því að skerma af umferðarniðinn frá Miklubraut, og mynda skjólsæla og sólríka inngarða í skjóli fyrir norðanáttinni.Jakob Jakobsson arkitekt Fyrirmyndin að þessum hugmyndum er sótt til verkefna í öðrum löndum. Í Helsinki er til dæmis verið að þróa byggð á veghelgunarsvæðum stofnbrauta. Í nýju byggingunum við Miklubraut væri hægt að koma fyrir íbúða- og atvinnuhúsnæði í bland en nútíma byggingartækni býður uppá afbragðs hljóðvarnir eins og hæfir staðsetningunni. Þessi nýju hús myndu bæði bæta hljóðvist eldri byggðar, með því að skerma af umferðarniðinn frá Miklubraut, og mynda skjólsæla og sólríka inngarða í skjóli fyrir norðanáttinni. Hér er hægt að skoða þessar hugmyndir og taka þátt í könnun um þær. Höfundur er deildarstjóri Hverfisskipulag Reykjavíkur/ Ph.D. arkitekt, Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ævar Harðarson Reykjavík Skipulag Tengdar fréttir Netsamráð um vinnutillögur við Bústaðaveg og Miklubraut Líflegar umræður hafa verið verið um vinnutillögur hverfisskipulags Háaleitis og Bústaða sem hafin var kynning á nýlega. Ekki síst um tillögur að uppbyggingu við gatnamót Miklubautar-Háaleitisbrautar og meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ. 1. desember 2021 17:00 Ný hæð borgar fyrir lyftu og viðhald Í kynningu sem var að hefjast á hugmyndum og tillögum að hverfisskipulagi fyrir Háteigshverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi eru sýndar hugmyndir um að heimila húsfélögum lyftulausra fjölbýlishúsa að bæta við íbúðarhæð samtímis því sem bætt er við lyftu. 19. nóvember 2021 12:01 Mest lesið Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann Skoðun Halldór 06.06.26. Halldór Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal skrifar Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Sjá meira
Netsamráð um vinnutillögur við Bústaðaveg og Miklubraut Líflegar umræður hafa verið verið um vinnutillögur hverfisskipulags Háaleitis og Bústaða sem hafin var kynning á nýlega. Ekki síst um tillögur að uppbyggingu við gatnamót Miklubautar-Háaleitisbrautar og meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ. 1. desember 2021 17:00
Ný hæð borgar fyrir lyftu og viðhald Í kynningu sem var að hefjast á hugmyndum og tillögum að hverfisskipulagi fyrir Háteigshverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi eru sýndar hugmyndir um að heimila húsfélögum lyftulausra fjölbýlishúsa að bæta við íbúðarhæð samtímis því sem bætt er við lyftu. 19. nóvember 2021 12:01
Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar