„Ég hef aldrei áður verið vændur um stuld“ Jakob Bjarnar skrifar 10. desember 2021 10:46 Ásgeir Jónsson segir að það væri ákaflega heimskulegt stöðu sinnar vegna að reyna slíkar kúnstir sem hugverkastuld, stöðu sinnar vegna. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur brugðist við fréttaflutningi af meintum hugverkastuldi og ásökunum Bergsveins Birgissonar, segist hafa lesið Leitina að svarta víkingnum en hún sé ekki hefðbundin sagnfræði. „Síðustu dagar hafa verið mjög sérstakir hjá mér þar sem ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki viljað bregðast við fyrr en ég hefði fengið ráðrúm til þess að lesa bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum og bregðast efnislega við þeim ásökunum sem hann hefur sett fram. Ég mun því fjalla ítarlega um málið síðar. Ég vil þó nefna nokkra hluti nú þegar,“ segir Ásgeir í pistli sem hann birti nú rétt í þessu á Facebook-síðu sinni. Dómsmál hugsanlega í uppsiglingu Vísir hefur fjallað ítarlega um þær ásakanir og birt greinargerð Bergsveins um líkindi milli Eyjunnar hans Ingólfs og Leitinni að svarta víkingnum. Seðlabankastjóri vísaði ásökunum Bergsveins á bug í stuttri yfirlýsingu en fyrirhuguðum fyrirlestri hans á vegum Miðaldastofu Háskólans var engu að síður slegið á frest vegna málsins. Í morgun greindi svo Fréttablaðið frá því að Bergsveinn útilokaði ekki málaferli, en hann bíður niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands en þangað hefur hann vísað málinu. Afgreiðsla þar getur að sögn Henrys Alexanders Henryssonar, sem á sæti í nefndinni, tekið um hálft ár. Ásgeir segir að bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum sé ekki hefðbundin sagnfræði. „Hún er það sem höfundur kallar sjálfur í formála „röksaga“ eða „ímyndun grundaða á þekkingu“. Ekki augljóst að um fræðirit sé að ræða Þá eða eins og segir í eftirmála að verkið sé „formtilraun, viðleitni til að brúa bilið milli fræðimanns og rithöfundar og nota bæði heilahvelin samtímis. Útkoman er blendingur.“ Bækurnar tvær sem um ræðir. Í þessu samhengi má einnig halda því til haga að í ritdómi um bókina sem Gunnar Karlsson ritaði í Sögu Tímarit Sögufélagsins árið 2019 eru gerðar athugasemdir við heimildanotkun og túlkanir bókarinnar og segir að ritverk af þessum toga séu „býsna ósambærileg við sagnfræði“. Gunnar telur það alls ekki augljóst að hún geti talist fræðirit. Ég fæ heldur ekki betur séð en að það viðhorf sé ríkjandi meðal annarra sagnfræðinga,“ segir Ásgeir og tekur fram að hann hafi ekki haft tíma til að kynna sér ritdóma um bókina á öðrum tungumálum. „Ég vil taka sérstaklega fram eftir að hafa lesið bók Bergveins að hún er mjög skemmtileg og upplýsandi um margt – og að mínu áliti frábært framtak af hans hálfu,“ segir Ásgeir. En tekur fram að hann sé í grundvallaratriðum ósammála niðurstöðum hans. Heimskulegt stöðu sinnar vegna að reyna slíkar kúnstir Lesa má útlistun Ásgeirs í pistli hans á Facebooksíðu hans, sem er alllangur. Ásgeir lýkur pistli sínum á því að segja: „Ég vil í lokin aðeins taka fram að ég hef aldrei áður verið vændur um stuld. Enda væri það ákaflega heimskulegt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að Svarta víkingnum sem var metsölubók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eignarrétti á einu eða neinu sem tengist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman.“ Pistil Ásgeirs sem hann birti á Facebook-síðu sinni má sjá í heild að neðan. Síðustu dagar hafa verið mjög sérstakir hjá mér þar sem ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki viljað bregðast við fyrr en ég hefði fengið ráðrúm til þess að lesa bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum og bregðast efnislega við þeim ásökunum sem hann hefur sett fram. Ég mun því fjalla ítarlega um málið síðar. Ég vil þó nefna nokkra hluti nú þegar. Bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum er ekki hefðbundin sagnfræði. Hún er það sem höfundur kallar sjálfur í formála „röksaga“ eða „ímyndun grundaða á þekkingu“. Þá eða eins og segir í eftirmála að verkið sé „formtilraun, viðleitni til að brúa bilið milli fræðimanns og rithöfundar og nota bæði heilahvelin samtímis. Útkoman er blendingur.“ Í þessu samhengi má einnig halda því til haga að í ritdómi um bókina sem Gunnar Karlsson ritaði í Sögu Tímarit Sögufélagsins árið 2019 eru gerðar athugasemdir við heimildanotkun og túlkanir bókarinnar og segir að ritverk af þessum toga séu „býsna ósambærileg við sagnfræði“. Gunnar telur það alls ekki augljóst að hún geti talist fræðirit. Ég fæ heldur ekki betur séð en að það viðhorf sé ríkjandi meðal annarra sagnfræðinga. Ég hef ekki haft tíma til að kynna mér ritdóma um bókina á öðrum tungumálum. Ég vil taka sérstaklega fram eftir að hafa lesið bók Bergveins að hún er mjög skemmtileg og upplýsandi um margt – og að mínu áliti frábært framtak af hans hálfu. Bók Bergsveins Leitin að svarta víkingnum er saga Geirmundar heljarskinns landnámsmanns. Áður en lengra er haldið er ágætt að gera grein fyrir því að ég er í grundvallaratriðum ósammála niðurstöðum Bergveins í þessari bók sem kristallast í setningunni „Geirmundur markar upphaf íslensku þjóðarinnar“ sem hann setur fram. Ég álít að Geirmundur hafi skipt litlu sem engu máli fyrir landnám Íslands heildarsamhengi. Ég hef enga trú á því að hann hafi byggt upp viðskiptaveldi með sölu á rostungsafurðum þó hann hafi án efa látið þræla sína stunda rostungsveiðar. Eins og ég les Landnámu þá kom hann hingað til lands á efri árum sem hálfgerður flóttamaður. Ég álít heldur ekki að rostungsveiðar hafi skipt miklu máli eftir að landnám Íslands hófst fyrir alvöru þó þær kunni að hafa skapað hvata fyrir fyrstu Íslandsferðunum. Hvaða mína bók varðar Eyjan hans Ingólfs þá er hún ekki fræðirit og hefur aldrei verið kynnt sem slík. Hún er til að mynda ekki með heimildaskrá. Ég get þeirra heimilda sem ég nota í neðanmálsgreinum en þessa bók má alls ekki líta á sem tæmandi fræðirit um landnám Íslands. Sagnfræðingar hafa ágætis orð fyrir bækur af þessu tagi sem „leikmannsþankar“. Þessi bók er sprottin upp af einlægum söguáhuga mínum. Mig langar til þess að fylgja bókinni eftir með því að rita fræðigreinar er tengjast hagsögu Íslands og það voru þær hugmyndir sem mig langaði til þess að kynna á málstofu í Háskóla Íslands – en enn sem komið eru þetta bara hugmyndir sem ég hef ekki ritað niður. Þá er ég ekki heldur að slá eign minni á eitt eða neitt í Íslandssögunni með því að gefa út þessa bók. Í formála segir aðeins: „Ég vona að þessi veikburða tilraun af minni hálfu verði lesandanum til einhvers fróðleiks og skemmtunar“. Í eftirmála segir aðeins að ég vonist til þess að bókin verði „upphaf að nýrri umræðu um landnám Íslands“. Svo má segja að sú ósk hafi sannarlega ræst þó ósinn sé alls ekki eins og uppsprettuna dreymdi. Ég vil líka taka fram að ég vonast ekki eftir neinum efnalegum ávinningi með ritun þessarar bókar. Ég verð aðeins ánægður ef bókin stendur undir framleiðslukostnaði. Eyjan hans Ingólfs er því aðeins veikburða tilraun af minni hálfu til þess að setja fram tilgátu um hvernig að þjóðskipulag myndaðist á Íslandi. Rostungsveiðar eru algert aukaatriði í þeirri frásögn. Ég fæ ekki betur séð en að að bækur okkar Bergsveins séu ákaflega ólíkar bæði hvað varðar nálgun, umfjöllun og niðurstöður. Ég held að öllum verði það ljóst sem lesa báðar bækurnar. Ég vil í lokin aðeins taka fram að ég hef aldrei áður verið vændur um stuld. Enda væri það ákaflega heimskulegt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að Svarta víkingnum sem var metsölubók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eignarrétti á einu eða neinu sem tengist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman. Bókaútgáfa Höfundarréttur Tengdar fréttir Útilokar ekki málsókn vegna meints ritstuldar Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðamaður, segist munu bíða niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands áður en hann tekur ákvörðun um mögulega málshöfðun á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, sem hann hefur sakað um ritstuld. 10. desember 2021 07:55 Fyrirlestri seðlabankastjóra um landnámsöldina frestað Til stóð að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri myndi halda fyrirlestur um efnahagsmál á landnámsöld. Honum hefur nú verið slegið á frest. 9. desember 2021 09:11 Seðlabankastjóri vísar ásökunum um ritstuld á bug Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sendi nýverið frá sér bók þar sem hann fjallar um landnám Íslands. Eyjan hans Ingólfs heitir bókin sú en Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður segir Ásgeir fara ránshendi um bók sína Leitin að svarta víkingnum án þess að geta heimilda. 8. desember 2021 18:24 Stolið og rangfært – um Eyjuna hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson Út er komin bókin Eyjan hans Ingólfs (héreftir EHI) eftir Ásgeir Jónsson. Útgefandi er Almenna bókafélagið (2021). Höfundur er með doktorsgráðu í hagfræði og var deildarforseti hagfræðideildar Háskóla Íslands. Höfundur starfar nú sem seðlabankastjóri Íslands. 8. desember 2021 15:43 Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Erlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Innlent Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Innlent Fleiri fréttir Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Sjá meira
„Síðustu dagar hafa verið mjög sérstakir hjá mér þar sem ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki viljað bregðast við fyrr en ég hefði fengið ráðrúm til þess að lesa bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum og bregðast efnislega við þeim ásökunum sem hann hefur sett fram. Ég mun því fjalla ítarlega um málið síðar. Ég vil þó nefna nokkra hluti nú þegar,“ segir Ásgeir í pistli sem hann birti nú rétt í þessu á Facebook-síðu sinni. Dómsmál hugsanlega í uppsiglingu Vísir hefur fjallað ítarlega um þær ásakanir og birt greinargerð Bergsveins um líkindi milli Eyjunnar hans Ingólfs og Leitinni að svarta víkingnum. Seðlabankastjóri vísaði ásökunum Bergsveins á bug í stuttri yfirlýsingu en fyrirhuguðum fyrirlestri hans á vegum Miðaldastofu Háskólans var engu að síður slegið á frest vegna málsins. Í morgun greindi svo Fréttablaðið frá því að Bergsveinn útilokaði ekki málaferli, en hann bíður niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands en þangað hefur hann vísað málinu. Afgreiðsla þar getur að sögn Henrys Alexanders Henryssonar, sem á sæti í nefndinni, tekið um hálft ár. Ásgeir segir að bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum sé ekki hefðbundin sagnfræði. „Hún er það sem höfundur kallar sjálfur í formála „röksaga“ eða „ímyndun grundaða á þekkingu“. Ekki augljóst að um fræðirit sé að ræða Þá eða eins og segir í eftirmála að verkið sé „formtilraun, viðleitni til að brúa bilið milli fræðimanns og rithöfundar og nota bæði heilahvelin samtímis. Útkoman er blendingur.“ Bækurnar tvær sem um ræðir. Í þessu samhengi má einnig halda því til haga að í ritdómi um bókina sem Gunnar Karlsson ritaði í Sögu Tímarit Sögufélagsins árið 2019 eru gerðar athugasemdir við heimildanotkun og túlkanir bókarinnar og segir að ritverk af þessum toga séu „býsna ósambærileg við sagnfræði“. Gunnar telur það alls ekki augljóst að hún geti talist fræðirit. Ég fæ heldur ekki betur séð en að það viðhorf sé ríkjandi meðal annarra sagnfræðinga,“ segir Ásgeir og tekur fram að hann hafi ekki haft tíma til að kynna sér ritdóma um bókina á öðrum tungumálum. „Ég vil taka sérstaklega fram eftir að hafa lesið bók Bergveins að hún er mjög skemmtileg og upplýsandi um margt – og að mínu áliti frábært framtak af hans hálfu,“ segir Ásgeir. En tekur fram að hann sé í grundvallaratriðum ósammála niðurstöðum hans. Heimskulegt stöðu sinnar vegna að reyna slíkar kúnstir Lesa má útlistun Ásgeirs í pistli hans á Facebooksíðu hans, sem er alllangur. Ásgeir lýkur pistli sínum á því að segja: „Ég vil í lokin aðeins taka fram að ég hef aldrei áður verið vændur um stuld. Enda væri það ákaflega heimskulegt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að Svarta víkingnum sem var metsölubók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eignarrétti á einu eða neinu sem tengist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman.“ Pistil Ásgeirs sem hann birti á Facebook-síðu sinni má sjá í heild að neðan. Síðustu dagar hafa verið mjög sérstakir hjá mér þar sem ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki viljað bregðast við fyrr en ég hefði fengið ráðrúm til þess að lesa bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum og bregðast efnislega við þeim ásökunum sem hann hefur sett fram. Ég mun því fjalla ítarlega um málið síðar. Ég vil þó nefna nokkra hluti nú þegar. Bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum er ekki hefðbundin sagnfræði. Hún er það sem höfundur kallar sjálfur í formála „röksaga“ eða „ímyndun grundaða á þekkingu“. Þá eða eins og segir í eftirmála að verkið sé „formtilraun, viðleitni til að brúa bilið milli fræðimanns og rithöfundar og nota bæði heilahvelin samtímis. Útkoman er blendingur.“ Í þessu samhengi má einnig halda því til haga að í ritdómi um bókina sem Gunnar Karlsson ritaði í Sögu Tímarit Sögufélagsins árið 2019 eru gerðar athugasemdir við heimildanotkun og túlkanir bókarinnar og segir að ritverk af þessum toga séu „býsna ósambærileg við sagnfræði“. Gunnar telur það alls ekki augljóst að hún geti talist fræðirit. Ég fæ heldur ekki betur séð en að það viðhorf sé ríkjandi meðal annarra sagnfræðinga. Ég hef ekki haft tíma til að kynna mér ritdóma um bókina á öðrum tungumálum. Ég vil taka sérstaklega fram eftir að hafa lesið bók Bergveins að hún er mjög skemmtileg og upplýsandi um margt – og að mínu áliti frábært framtak af hans hálfu. Bók Bergsveins Leitin að svarta víkingnum er saga Geirmundar heljarskinns landnámsmanns. Áður en lengra er haldið er ágætt að gera grein fyrir því að ég er í grundvallaratriðum ósammála niðurstöðum Bergveins í þessari bók sem kristallast í setningunni „Geirmundur markar upphaf íslensku þjóðarinnar“ sem hann setur fram. Ég álít að Geirmundur hafi skipt litlu sem engu máli fyrir landnám Íslands heildarsamhengi. Ég hef enga trú á því að hann hafi byggt upp viðskiptaveldi með sölu á rostungsafurðum þó hann hafi án efa látið þræla sína stunda rostungsveiðar. Eins og ég les Landnámu þá kom hann hingað til lands á efri árum sem hálfgerður flóttamaður. Ég álít heldur ekki að rostungsveiðar hafi skipt miklu máli eftir að landnám Íslands hófst fyrir alvöru þó þær kunni að hafa skapað hvata fyrir fyrstu Íslandsferðunum. Hvaða mína bók varðar Eyjan hans Ingólfs þá er hún ekki fræðirit og hefur aldrei verið kynnt sem slík. Hún er til að mynda ekki með heimildaskrá. Ég get þeirra heimilda sem ég nota í neðanmálsgreinum en þessa bók má alls ekki líta á sem tæmandi fræðirit um landnám Íslands. Sagnfræðingar hafa ágætis orð fyrir bækur af þessu tagi sem „leikmannsþankar“. Þessi bók er sprottin upp af einlægum söguáhuga mínum. Mig langar til þess að fylgja bókinni eftir með því að rita fræðigreinar er tengjast hagsögu Íslands og það voru þær hugmyndir sem mig langaði til þess að kynna á málstofu í Háskóla Íslands – en enn sem komið eru þetta bara hugmyndir sem ég hef ekki ritað niður. Þá er ég ekki heldur að slá eign minni á eitt eða neitt í Íslandssögunni með því að gefa út þessa bók. Í formála segir aðeins: „Ég vona að þessi veikburða tilraun af minni hálfu verði lesandanum til einhvers fróðleiks og skemmtunar“. Í eftirmála segir aðeins að ég vonist til þess að bókin verði „upphaf að nýrri umræðu um landnám Íslands“. Svo má segja að sú ósk hafi sannarlega ræst þó ósinn sé alls ekki eins og uppsprettuna dreymdi. Ég vil líka taka fram að ég vonast ekki eftir neinum efnalegum ávinningi með ritun þessarar bókar. Ég verð aðeins ánægður ef bókin stendur undir framleiðslukostnaði. Eyjan hans Ingólfs er því aðeins veikburða tilraun af minni hálfu til þess að setja fram tilgátu um hvernig að þjóðskipulag myndaðist á Íslandi. Rostungsveiðar eru algert aukaatriði í þeirri frásögn. Ég fæ ekki betur séð en að að bækur okkar Bergsveins séu ákaflega ólíkar bæði hvað varðar nálgun, umfjöllun og niðurstöður. Ég held að öllum verði það ljóst sem lesa báðar bækurnar. Ég vil í lokin aðeins taka fram að ég hef aldrei áður verið vændur um stuld. Enda væri það ákaflega heimskulegt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að Svarta víkingnum sem var metsölubók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eignarrétti á einu eða neinu sem tengist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman.
Síðustu dagar hafa verið mjög sérstakir hjá mér þar sem ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki viljað bregðast við fyrr en ég hefði fengið ráðrúm til þess að lesa bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum og bregðast efnislega við þeim ásökunum sem hann hefur sett fram. Ég mun því fjalla ítarlega um málið síðar. Ég vil þó nefna nokkra hluti nú þegar. Bók Bergsveins Birgissonar Leitin að svarta víkingnum er ekki hefðbundin sagnfræði. Hún er það sem höfundur kallar sjálfur í formála „röksaga“ eða „ímyndun grundaða á þekkingu“. Þá eða eins og segir í eftirmála að verkið sé „formtilraun, viðleitni til að brúa bilið milli fræðimanns og rithöfundar og nota bæði heilahvelin samtímis. Útkoman er blendingur.“ Í þessu samhengi má einnig halda því til haga að í ritdómi um bókina sem Gunnar Karlsson ritaði í Sögu Tímarit Sögufélagsins árið 2019 eru gerðar athugasemdir við heimildanotkun og túlkanir bókarinnar og segir að ritverk af þessum toga séu „býsna ósambærileg við sagnfræði“. Gunnar telur það alls ekki augljóst að hún geti talist fræðirit. Ég fæ heldur ekki betur séð en að það viðhorf sé ríkjandi meðal annarra sagnfræðinga. Ég hef ekki haft tíma til að kynna mér ritdóma um bókina á öðrum tungumálum. Ég vil taka sérstaklega fram eftir að hafa lesið bók Bergveins að hún er mjög skemmtileg og upplýsandi um margt – og að mínu áliti frábært framtak af hans hálfu. Bók Bergsveins Leitin að svarta víkingnum er saga Geirmundar heljarskinns landnámsmanns. Áður en lengra er haldið er ágætt að gera grein fyrir því að ég er í grundvallaratriðum ósammála niðurstöðum Bergveins í þessari bók sem kristallast í setningunni „Geirmundur markar upphaf íslensku þjóðarinnar“ sem hann setur fram. Ég álít að Geirmundur hafi skipt litlu sem engu máli fyrir landnám Íslands heildarsamhengi. Ég hef enga trú á því að hann hafi byggt upp viðskiptaveldi með sölu á rostungsafurðum þó hann hafi án efa látið þræla sína stunda rostungsveiðar. Eins og ég les Landnámu þá kom hann hingað til lands á efri árum sem hálfgerður flóttamaður. Ég álít heldur ekki að rostungsveiðar hafi skipt miklu máli eftir að landnám Íslands hófst fyrir alvöru þó þær kunni að hafa skapað hvata fyrir fyrstu Íslandsferðunum. Hvaða mína bók varðar Eyjan hans Ingólfs þá er hún ekki fræðirit og hefur aldrei verið kynnt sem slík. Hún er til að mynda ekki með heimildaskrá. Ég get þeirra heimilda sem ég nota í neðanmálsgreinum en þessa bók má alls ekki líta á sem tæmandi fræðirit um landnám Íslands. Sagnfræðingar hafa ágætis orð fyrir bækur af þessu tagi sem „leikmannsþankar“. Þessi bók er sprottin upp af einlægum söguáhuga mínum. Mig langar til þess að fylgja bókinni eftir með því að rita fræðigreinar er tengjast hagsögu Íslands og það voru þær hugmyndir sem mig langaði til þess að kynna á málstofu í Háskóla Íslands – en enn sem komið eru þetta bara hugmyndir sem ég hef ekki ritað niður. Þá er ég ekki heldur að slá eign minni á eitt eða neitt í Íslandssögunni með því að gefa út þessa bók. Í formála segir aðeins: „Ég vona að þessi veikburða tilraun af minni hálfu verði lesandanum til einhvers fróðleiks og skemmtunar“. Í eftirmála segir aðeins að ég vonist til þess að bókin verði „upphaf að nýrri umræðu um landnám Íslands“. Svo má segja að sú ósk hafi sannarlega ræst þó ósinn sé alls ekki eins og uppsprettuna dreymdi. Ég vil líka taka fram að ég vonast ekki eftir neinum efnalegum ávinningi með ritun þessarar bókar. Ég verð aðeins ánægður ef bókin stendur undir framleiðslukostnaði. Eyjan hans Ingólfs er því aðeins veikburða tilraun af minni hálfu til þess að setja fram tilgátu um hvernig að þjóðskipulag myndaðist á Íslandi. Rostungsveiðar eru algert aukaatriði í þeirri frásögn. Ég fæ ekki betur séð en að að bækur okkar Bergsveins séu ákaflega ólíkar bæði hvað varðar nálgun, umfjöllun og niðurstöður. Ég held að öllum verði það ljóst sem lesa báðar bækurnar. Ég vil í lokin aðeins taka fram að ég hef aldrei áður verið vændur um stuld. Enda væri það ákaflega heimskulegt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að Svarta víkingnum sem var metsölubók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eignarrétti á einu eða neinu sem tengist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman.
Bókaútgáfa Höfundarréttur Tengdar fréttir Útilokar ekki málsókn vegna meints ritstuldar Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðamaður, segist munu bíða niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands áður en hann tekur ákvörðun um mögulega málshöfðun á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, sem hann hefur sakað um ritstuld. 10. desember 2021 07:55 Fyrirlestri seðlabankastjóra um landnámsöldina frestað Til stóð að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri myndi halda fyrirlestur um efnahagsmál á landnámsöld. Honum hefur nú verið slegið á frest. 9. desember 2021 09:11 Seðlabankastjóri vísar ásökunum um ritstuld á bug Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sendi nýverið frá sér bók þar sem hann fjallar um landnám Íslands. Eyjan hans Ingólfs heitir bókin sú en Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður segir Ásgeir fara ránshendi um bók sína Leitin að svarta víkingnum án þess að geta heimilda. 8. desember 2021 18:24 Stolið og rangfært – um Eyjuna hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson Út er komin bókin Eyjan hans Ingólfs (héreftir EHI) eftir Ásgeir Jónsson. Útgefandi er Almenna bókafélagið (2021). Höfundur er með doktorsgráðu í hagfræði og var deildarforseti hagfræðideildar Háskóla Íslands. Höfundur starfar nú sem seðlabankastjóri Íslands. 8. desember 2021 15:43 Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Erlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Innlent Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Innlent Fleiri fréttir Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Sjá meira
Útilokar ekki málsókn vegna meints ritstuldar Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðamaður, segist munu bíða niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands áður en hann tekur ákvörðun um mögulega málshöfðun á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, sem hann hefur sakað um ritstuld. 10. desember 2021 07:55
Fyrirlestri seðlabankastjóra um landnámsöldina frestað Til stóð að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri myndi halda fyrirlestur um efnahagsmál á landnámsöld. Honum hefur nú verið slegið á frest. 9. desember 2021 09:11
Seðlabankastjóri vísar ásökunum um ritstuld á bug Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sendi nýverið frá sér bók þar sem hann fjallar um landnám Íslands. Eyjan hans Ingólfs heitir bókin sú en Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður segir Ásgeir fara ránshendi um bók sína Leitin að svarta víkingnum án þess að geta heimilda. 8. desember 2021 18:24
Stolið og rangfært – um Eyjuna hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson Út er komin bókin Eyjan hans Ingólfs (héreftir EHI) eftir Ásgeir Jónsson. Útgefandi er Almenna bókafélagið (2021). Höfundur er með doktorsgráðu í hagfræði og var deildarforseti hagfræðideildar Háskóla Íslands. Höfundur starfar nú sem seðlabankastjóri Íslands. 8. desember 2021 15:43