Neitar að hafa snert brjóst eða kynfæri á óviðeigandi hátt Kolbeinn Tumi Daðason og Vésteinn Örn Pétursson skrifa 13. janúar 2022 10:25 Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson við störf sem meðhöndlari. Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson segist hvorki hafa komið á óviðeigandi hátt við brjóst eða kynfæri ungrar konu sem sætti meðferð hjá honum á meðferðarstofu hans árið 2012. Hann vildi lítið tjá sig fyrir dómi í morgun um ásakanir sem bornar eru á hann, umfram það sem hann hefur áður tjáð sig í skýrslutöku hjá lögreglu.
Þetta kom fram við aðalmeðferð í máli héraðssaskóknara gegn Jóhannesi Tryggva í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Jóhannes, sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni í fyrra, sætir ákæru fyrir að hafa nauðgað fimmtu konunni. Jóhannes Tryggvi starfaði sem svonefndur „meðhöndlari“ og gaf sig út fyrir að geta linað þjáningar fólks með bak- og stoðkerfisvandamál. Hann var sakfelldur fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni á árunum 2009 til 2015 í janúar. Í fimma nauðgunarmálinu er Jóhannesi Tryggva gefið að sök að hafa nauðgað konu með því að hafa við hana önnur kynferðismök en samræði án samþykkis hennar og misnotað traust hennar í tvígang í janúar árið 2012. Man lítið eftir samskiptunum Jóhannes mætti ekki í dómssal í morgun. Steinbergur Finnbogason, verjandi hans, upplýsti fjölskipaðan héraðsdóm um að Jóhannes væri í sóttkví og þyrfti því að bera vitni í gegnum fjarfundabúnað. Dagmar Ösp Vésteinsdóttir, saksóknari í málinu, byrjaði á því að spyrja Jóhannes út í menntun sína. Jóhannes svaraði að hann ætlaði ekkert að tjá sig um sakargiftir utan þess sem fram hefði komið hjá lögreglu. Steinbergur verjandi sagði Jóhannes einfaldlega staðfesta allt sem komið hefði fram í máli hans í skýrslutöku hjá lögreglu. Ingi Tryggvason héraðsdómari tók við og spurði Jóhannes út í sakargiftirnar. Jóhannes sagðist ekki hafa komið á óviðeigandi hátt við kynfæri eða brjóst konunnar. Hann sagðist kannast við ungu konuna þar sem hann hefði þekkt móður hennar. „Ég man ekkert eftir neinu meira varðandi þessa stúlku,“ sagði Jóhannes. Saksóknari spurði þá Jóhannes út í starfshætti hans en Jóhannes ítrekaði svar sitt um að ætla ekki að tjá sig frekar. „Þetta er bara orðið gott hjá mér.“ Sagðist ekki hafa farið inn í leggöng konunnar Steinbergur verjandi hans spurði hann út í lögregluskýrsluna. Jóhannes staðfesti fyrri neitun að hafa sett fingur í leggöng konunnar eða að hafa nuddað brjóst hennar eða kynfæri með óviðeigandi eða kynferðislegum hætti. Hann sagðist standa við allt sem fram kæmi í skýrslunni. Saksóknari spurði Jóhannes út í fyrri ummæli að hann færi inn í leggöng kvenna til að hjálpa þeim. Jóhannes sagðist ekki hafa gert það við þessa konu. Þá neitaði hann að svara fleiri spurningum og sagðist einfaldlega standa við lögregluskýrsluna. Lauk þar með skýrslutöku yfir Jóhannesi. Saksóknari tjáði dómara að Steinbergur, verjandi Jóhannesar, hefði óskað eftir tveimur vitnum til viðbótar í málinu. Annað byggi í Bandaríkjunum en lögregla hefði ekki náð í vitnið, sem virtist vera lítið mál að mati verjandans. Hitt vitnið væri hins vegar ekki laust til að gefa skýrslu í dag eða á morgun. Ingi dómari sagðist ætla að hringja í vitnið og reyna að leysa málið, mögulega með aðstoð fjarfundabúnaðar. Brotaþoli taldi ekki ástæðu til að loka þinghaldi Konan sem kærði brotin fór ekki fram á að þinghald í málinu yrði lokað til þess að hlífa hagsmunum hennar. Það gerði Jóhannes Tryggvi hins vegar. Vísaði hann til þess að opin þinghöld myndu leiða til frekari umfjöllunar fjölmiðla sem myndi reynast honum og fjölskyldu hans þungbær. Þar sem hann vildi getað kallað brotaþola úr fyrra dómsmálinu sem vitni gætu nöfn þeirra verið gerð opinber yrði þinghaldið opið. Dómari við Héraðsdóm Reykjaness hafnaði kröfu Jóhannesar Tryggva með þeim orðum að ekkert hafi komið fram sem yrði til þess að víkja skyldi frá þeirri meginreglu að þinghald væri opið. Þau rök sem Jóhannes Tryggvi hefði lagt fram fyrir kröfunni gætu ekki ein og sér orðið til þess að fallist yrði á hana. Aðalmeðferðin stendur fram eftir degi og verður framhaldið á morgun þegar áætlað er að málflutningur fari fram. Næst verður tekin skýrsla af brotaþola. Uppfært klukkan 10:38 Héraðsdómari hefur ákveðið að fjölmiðlum sé óheimilt að birta upplýsingar úr öðrum skýrslugjöfum þar til skýrslugjöfum er lokið.
Dómsmál Mál Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Brotavilji Jóhannesar talinn bæði sterkur og einbeittur Landsréttur telur að brotavilji Jóhannes Tryggva Sveinbjörnssonar, sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum hafi bæði verið einbeittur og sterkur. Hann hafi framið alvarleg brot gegn konunum, í skjóli trúnaðartrausts sem þær báru til hans. 8. nóvember 2021 20:03 Opið þinghald í fimmta nauðgunarmáli „meðhöndlara“ Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að þinghald í máli Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar verði opið. Hann er ákærður fyrir nauðgun en hann var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni. 13. október 2021 08:35 Meðhöndlarinn sem misnotaði traust þjáðra kvenna Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum, virðist hafa talið kvenkyns sjúklinga marga hverja girnast sig kynferðislega. Brot hans gegn tveimur kvennanna þóttu sérstaklega ósvífin í ljósi ungs aldurs annarrar konunnar og þess að hin var með alvarlegan sjúkdóm. 8. janúar 2021 07:01 Mest lesið Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Erlent Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Innlent Þrír fundust látnir í Noregi Erlent Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Innlent Le Pen sakfelld fyrir fjársvik Erlent Fordæma árás á sjúkraliða Erlent Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Innlent „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Erlent Fleiri fréttir Hallarekstur stöðvaður á næstu tveimur árum Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Grindvíkingar segjast vera Excel skjöl í ráðuneytum í Reykjavík Grænlandsheimsókn varaforseta og þrumuveður Þremur vísað út af Landspítalanum Stemningin farin ári fyrir stjórnarslitin Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Eina fjallamennskunámið leggst að óbreyttu af Taldi 150 holur á stuttum vegakafla á Suðurlandi „Það er voða hentugt að kenna okkur um þetta en við erum alsaklaus“ Ólögmæt gjaldtaka gæti kostað ríkið milljarða Bílar á víð og dreif hindruðu aðgengi slökkviliðsbíla Þungt yfir Bangkok og lögsókn vegna olíugjalda Endurreisn VG og njósnir á Íslandi Reyndi að stinga lögreglu af á torfæruhjóli Björguðu á þriðja tug af Eyjafjallajökli Ungir skátar sæmdir forsetamerkinu Ný gæðavottun stuðli ekki að mismunun Mikið líf og fjör á Íslandsleikunum á Selfossi Íslendingur á Grænlandi: „Það heyrist ekki múkk í neinum“ Hestar á vappi um Kórana Tilkynnt um ungmenni sem framdi rán og líkamsárás Spenna á Grænlandi og íslenskumiði í glugga leigubíla Bæjarstjórnin gagnrýnir skýrslu um hvernig eigi að byggja upp bæinn Roðsnakk frá 19 ára frumkvöðli slær í gegn Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Sjá meira
Brotavilji Jóhannesar talinn bæði sterkur og einbeittur Landsréttur telur að brotavilji Jóhannes Tryggva Sveinbjörnssonar, sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum hafi bæði verið einbeittur og sterkur. Hann hafi framið alvarleg brot gegn konunum, í skjóli trúnaðartrausts sem þær báru til hans. 8. nóvember 2021 20:03
Opið þinghald í fimmta nauðgunarmáli „meðhöndlara“ Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að þinghald í máli Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar verði opið. Hann er ákærður fyrir nauðgun en hann var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni. 13. október 2021 08:35
Meðhöndlarinn sem misnotaði traust þjáðra kvenna Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum, virðist hafa talið kvenkyns sjúklinga marga hverja girnast sig kynferðislega. Brot hans gegn tveimur kvennanna þóttu sérstaklega ósvífin í ljósi ungs aldurs annarrar konunnar og þess að hin var með alvarlegan sjúkdóm. 8. janúar 2021 07:01