Erlent

For­sætis­ráð­herra Sví­þjóðar með Co­vid-19

Atli Ísleifsson skrifar
Magdalena Andersson tók við embætti forætisráðherra Svíþjóðar í lok síðasta árs.
Magdalena Andersson tók við embætti forætisráðherra Svíþjóðar í lok síðasta árs. EPA

Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur greinst með Covid-19.

Sænskir fjölmiðlar hafa eftir upplýsingafulltrúa forsætisráðherrans að Andersson hafi greinst með veiruna í hraðprófi. „Hún fylgir sóttvarnareglum og hyggst sinna vinnu sinni að heiman.“

Þá segir að Andersson líði eftir atvikum vel.

Nokkur fjöldi sænskra þingmanna hefur greinst með Covid-19 síðustu daga, þeirra á meðal tveir flokksformanna á þingi – Annie Lööf, formaður Miðflokksins, og Per Bolund, annar talsmanna Græningja.

Þau Lööf, Bolund og Andersson tóku öll þátt í umræðum flokksformanna á sænska þinginu á miðvikudag, auk þess að sitja saman fund síðar sama dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×