Mané fór meiddur af velli er Senegal lagði níu leikmenn Grænhöfðaeyja Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. janúar 2022 17:56 Sadio Mané skoraði fyrra mark Senegal áður en hann þurfti að fara meiddur af velli. Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images Sadio Mané skoraði fyrra mark leiksins er Senegal tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Afríkumótsins í fótbolta með 2-0 sigri gegn Grænhöfðaeyjum. Tveir leikmenn Grænhöfðaeyja sáu rautt og Mané þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla.
Leikmenn Grænhöfðaeyja komu sér í vandræði eftir aðeins tuttugu mínútna leik þegar Patrick Andrade fékk að líta beint rautt spjald. Leikmenn Senegal náðu ekki að nýta sér liðsmuninn fyrir hálfleik og því var staðan enn 0-0 þegar gengið var til búningsherbergja. Ekki batnaði útlitið fyrir Grænhöfðaeyjar þegar markvörður liðsins, Vozinha, fékk einnig að líta beint rautt spjald, og liðið þurfti því að leika seinasta hálftíma leiksins tveimur mönnum færri. Þennan liðsmun náðu Senegalar að nýta sér, því aðeins sex mínútum eftir seinna rauða spjaldið var Sadio Mané búinn að koma liðinu í 1-0 með glæsilegu marki. Örfáum mínútum síðar þurfti Mané svo að yfirgefa völlinn, en hann hafði lent í samstuðu við markvörð Grænhöfðaeyja sem leiddi til þess að markvörðurinn fékk að líta rauða spjaldið. Eins og við var að búast sóttu Senegalar stíft það sem eftir lifði leiks, og það skilaði sér loks í uppbótartíma þegar Ahmadou Bamba Dieng slapp einn í gegn og gulltryggði 2-0 sigur liðsins. Senegal er nú komið í átta liða úrslit á kostnað Grænhöfðaeyja þar sem liðið mætir annað hvort Malí eða Miðbaugs-Gíneu.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Sjá meira