Innlent

Loka fyrir heitt vatn í hluta Kópa­vogs og Garða­bæjar vegna bilunar

Eiður Þór Árnason skrifar
Unnið er að því að koma framleiðslu heits vatns í virkjuninni í gang á ný.
Unnið er að því að koma framleiðslu heits vatns í virkjuninni í gang á ný. ON

Heildarframleiðslugeta á heitu vatni fyrir hitaveitu höfuðborgarsvæðisins er skert um 30% vegna bilunar í Nesjavallavirkjun. Engin framleiðsla er á vatni á Nesjavöllum eins og stendur. 

Við bilunina kom högg á dreifikerfi hitaveitunnar með þeim afleiðingum að leki kom að annarri Reykjaæðinni en þær flytja heitt vatn frá Mosfellsbæ til borgarinnar. Hitaveitugeymar á Reynisvatnsheiði hafa því sem næst tæmst í morgun, segir í tilkynningu frá Veitum.

Af þessum sökum þarf að loka fyrir heitt vatn í Lindum, Smára og vesturbæ Kópavogs og í Garðabæ (utan Urriðaholts og Holtsbúðar) frá klukkan 14:00 til 18:00 í dag.

Greint var frá því í morgun að sprenging hafi orðið í tengivirki Landsnets á Nesjavöllum með þeim afleiðingum að þremur af fjórum aflvélum Nesjavallavirkjunar sló út. Aftengja þurfti fjórðu aflvélina svo starfsfólk Orku náttúrunnar gæti athafnað sig við tengivirkið þar sem sprengingin varð. 

Svæðið sem um ræðir.Veitur

Fólk loki gluggum og fari sparlega með heita vatnið

„Í morgun hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða til að mæta þessari stöðu. Búið er að færa fjölda hverfa á höfuðborgarsvæðinu, sem fengu vatn frá virkjunum, yfir á vatn úr borholum á lághitasvæðum í Reykjavík og Mosfellsbæ,“ segir í tilkynningunni. Hellisheiðarvirkjun sé keyrð á fullum afköstum.

Að sögn Veitna er nú unnið markvisst að því að koma framleiðslu heits vatns í virkjuninni í gang. Áætlað er að viðgerðir í virkjuninni taki nokkra daga en reynt verður að sjá til þess að sem minnst truflun verði á framleiðslu heits vatns.

Veðurspá gerir ráð fyrir kuldatíð næstu daga og má því búast við að notkun á heitu vatni verði mikil. Veitur hvetja fólk til að fara einstaklega sparlega með heita vatnið og hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur til að tapa ekki varma úr húsum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×