Höfðum stolið úr grafhýsum í kirkjugarði í Melbourne Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. febrúar 2022 07:57 Lögregla segir þjófnaðina mögulega tengjast iðkun Satanisma. Lögregluyfirvöld í Melbourne í Ástralíu rannsaka nú þjófnað á höfðum sem var stolið í Footscrey-kirkjugarðinum. Þjófnaðirnir áttu sér stað í tveimur aðskildum atvikum í janúar en lögregla segir ómögulegt að segja hvað hinum óprúttnu aðilum gengur til.
Líkamsleifarnar sem um ræðir höfðu verið lagðar til hinstu hvílu í svokölluðum leghöllum. Upp komst um þjófnaðinn þegar tilkynnt var um skemmdarverk en ekki var að sjá að annað hefði verið tekið en höfuðin. Annað atvikið átti sér stað aðfaranótt 28. janúar og hitt aðfaranótt 1. febrúar. Ekki er vitað til þess að nokkur tengsl séu á milli þeirra einstaklinga hvers höfuð voru tekin en lögregla segir þjófnaðina hafa valdið ástvinum viðkomandi einstaklinga verulegum þjáningum. Guardian hefur eftir rannsóknarlögreglumanninum Ben Jarman að lögregla hafi ekki hugmynd um hvað þjófunum hefur gengið til en sagði ekki útilokað að þjófnaðirnir tengdust iðkun Satanisma. Jarman sagði lögreglu ekki vera kunnugt um aðra þjófnaði af þessu tagi í Viktoríu. Þjófarnir hefðu skilið eitthvað eftir á vettvangi en það krefðist töluverðrar fyrirhafnar að komast inn í grafhýsin og að fjarlægja höfuðin.
Ástralía Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira