Innlent

Ná­lægðar­tak­mörk á sitjandi við­burðum felld úr gildi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þessar merkingar munu heyra sögunni til frá og með morgundeginum.
Þessar merkingar munu heyra sögunni til frá og með morgundeginum. Þjóðleikhúsið

Frá og með morgundeginum verður hætt að gera kröfu um eins metra nálægðarmörk á sitjandi viðburðum. 

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þetta að höfðu samráði við sóttvarnalækni. Þetta segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu

Það þýðir að svo lengi sem ekki séu fleiri en fimm hundruð í hólfi á sitjandi viðburði þarf ekki að gæta nálægðartakmarka. 

Síðast tóku afléttingar gildi á laugardag en þá voru fjöldatakmörk færð úr tíu mönnum upp í fimmtíu og upp í fimm hundruð á sitjandi viðburðum. Gert var ráð fyrir að næst yrðu afléttingar tilkynntar í fyrsta lagi nú á föstudag eða eftir þrjár vikur, þegar núgildandi reglur falla úr gildi. 


Tengdar fréttir

Telur mögulegt að verið sé að gefa ráðherra heimild til skyldubólusetninga

Þingmaður Samfylkingarinnar segir stórpólitískt mál að fela heilbrigðisráðherra heimild til að ákveða ónæmisaðgerðir eins og bólusetningu með reglugerð einni saman. Það geti veitt honum svigrúm til að setja á skyldubólusetningu. Sóttvarnalæknir verður samkvæmt nýju frumvarpi pólitískt skipaður.

Sýndi fram á meintan fá­rán­leika að­gerða í beinni

Framkvæmdastjóri Senu kallar eftir því að stjórnvöld afnemi eins metra fjarlægðarreglu á skipulögðum viðburðum. Hann er gagnrýninn á að ekki megi selja áfengi á viðburðum, meðan fólk geti farið gagngert á barinn til þess að drekka áfengi.

Stefna á að aflétta hraðar

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að stefnt sé á að aflétta hraðar en fyrirætlanir gera ráð fyrir. Ráðgert er að hægt verði að aflétta öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveiru hér á landi um miðjan mars en Þórólfur bindur vonir við að hægt sé að gera það enn fyrr.

Til skoðunar að stytta einangrun

Til umræðu er að stytta einangrun niður í fimm daga að sögn Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×