Ormsson laust úr skammakrók Neytendasamtakanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. mars 2022 14:43 „Neytendasamtökin fagna ákvörðun Ormssonar og hvetja önnur fyrirtæki til að feta í fótspor þeirra og fylgja úrskurði kærunefndarinnar,“ segir nú á vef Neytendasamtakanna. Neytendasamtökin hafa tekið Ormsson af listanum yfir þá „svörtu sauði“ sem ekki hafa hlýtt niðurstöðum kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Nýir eigendur tóku við fyrirtækinu í fyrra og hafa gert upp umrætt mál.
Í tilkynningu á vef Neytendasamtakanna segir að nýir eigendur Ormsson telji það ekki samræmast gildum fyrirtækisins að eiga í útistöðum við viðskiptavini sína og að þeir hafi ákveðið að una niðurstöðu kærunefndarinnar. Vísir ræddi við Sigrúnu L. Sigurjónsdóttur, fjármálastjóra fyrirtækisins, sem sagði umrætt mál hafa verið gert upp þannig að allir hefðu gengið sáttir frá borði. Málið varðaði gallaða þvottavél. Fréttastofa greindi frá því fyrr í dag að Neytendasamtökin hefðu í gær birt lista yfir sjö fyrirtæki sem hefðu verið sett í „skammakrókinn“ fyrir að fara ekki að niðurstöðum kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Voru neytendur varaðir við því að versla við umrædd fyrirtæki. Í tilkynningu samtakanna var greint frá því að upphæðir í umræddum málum væru ekki nógu háar til að fólk sæi sér hag í því að leita til dómstóla, jafnvel þótt líklega myndu málin vinnast, og þeirri spurningu varpað fram hvort nauðsynlegt væri að koma á fót svokölluðum smákrafnarétti.
Neytendur Verslun Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira