Smásál vermir stól forseta lýðveldisins Ástþór Magnússon skrifar 9. mars 2022 10:30 Það fer um mig hrollur að fyrsta framlag ríkisstjórnarinnar til „friðar” í Úkraníu hafi verið að leggja til Íslenska flugvél undir vopnaflutninga. Með þeirri aðgerð tók Ísland beinan þátt í styrjöld sem var svo trompað í Silfri RÚV af forseta sem gengur nú erinda vopnaframleiðenda eins og ég sagði í aðdraganda forsetakosninga að hann myndi gera á örlagastundu ef kjörinn í embætti. Litli forsetinn lét gamminn geisa með einhliða stríðsáróðri. Við skyldum styðja karlmennsku og hafna því að setja okkur inní deilumálið. Þáttastjórnandinn spurði þá hvort við værum dottin í ákveðin stríðsham og benti á að málið væri ekki eins einfalt og litla sálin sem RÚV tróð í embætti forseta léti í veðri vaka. Þá snérist vindhaninn á Bessastöðum á púnktinum yfir í það sem hann taldi vinsælla, hjal um að hafa setið barnaþing. Hafa Íslendingar ekkert betra fram að færa en þetta óráðshjal? Það er nýtt fyrir mér að hægt sé að stilla til friðar með vopnum og einhliða áróðri. Aðeins smámenni kokgleypa stríðsáróður vopnaframleiðenda Þjóðhöfðingi og ráðherrar sem kokgleypa bandarískan stríðsáróður án þess að kynna sér allar hliðar málsins eru smámenni og eru varla starfi sínu vaxin. Nú er að gerast svipað og gerðist í aðdraganda styrjaldanna í Írak og Líbíu. Sorglegt að sjá þetta endurtaka sig með styrjöld í Úkraníu. Íslenskir ráðamenn hafa látið sem vind um eyru þjóta ítrekaðar viðvaranir m.a. frá Friði 2000 undanfarna áratugi. Tillögur til friðar eru hundsaðar bæði af Íslenskum ráðamönnum og fjölmiðlum. Það er nokkuð mikil einföldun að heimfæra öll þessi stríðsátök yfir á brjálaða einræðisherra. Menn ættu að kynna sér fyrirlestur bandaríska fræðimannsins John Mearsheimer við háskólann í Chicago sem útskýrir sögulegt samhengi Úkraníu deilunnar og nýja greiningu á málinu: https://youtu.be/JrMiSQAGOS4 og https://youtu.be/T6mw9U62ZJU Ísland flýgur um heimsbyggðina með drápstólin NATO er ekki friðarbandalag ef stjórnað af skammtíma hagsmunum hergagnaframleiðenda. Ef útrásarstefna NATO grefur undan heimsfriðnum hefur bandalagið snúist uppí andhverfu sína. NATO ríkin eru nú að stórauka, jafnvel tvöfalda framlög til hergagna og litla vopnlausa Ísland farið að fljúga um heimsbyggðina með drápstólin. Á sama tíma birtast fréttir að joðtöflur séu uppseldar í Íslenskum apótekum af ótta fólks við kjarnorkustyrjöld. Fulltrúar þjóðar sem búið hefur við frið nær óslitið í þúsund ár hljótið að sjá hvað þetta er orðin galin atburðarrás. Efnahagslegt stríð gegn Rússlandi mun ekki stuðla að friði. Allt stríð hvort með vopnum eða efnahagsþvingunum grefur undan heimsfriðnum. Það eru óraunhæf markmið að halda að 150 milljóna manna þjóðfélag búið kjarnorkuvopnum og með víðtæk tengsl inní Evrópu muni sætta sig við slíkt. Tími kalda stríðsins er lokið og ef reynt er að koma járntjaldinu á aftur mun slíkt fyrr eða síðar að snúast gegn okkur. Verið er að leika sér með eldspýtur og skapa gróðrarstíu fasisma sem getur snúist eins og innikróuð rotta og ráðist síðan á okkur með öllum sínum mætti. Friður 2000 sendi þér og öðrum Íslenskum ráðamönnum bréf í síðasta mánuði með raunhæfum tillögum að friðsamlegri lausn. Tillögur sem unnar voru með aðstoð fræðimanna sem hafa starfað að friðarmálum í áratugi. Staðan er auðvitað mun erfiðari nú eftir að stríð er hafið í Úkraníu. Til að von sé að ná árangri í friðarsamningum þarf að finna málamiðlun sem báðir deiluaðilar geta sætt sig við. Það er erfitt að sjá það gerast í dag nema með einhversskonar hlutleysisstefnu Úkraníu og mögulega sambandssríki hugsanlega með skírskotun til Sviss sem fyrirmynd. Tillaga að friðarsamningi gæti byggst á eftirfarandi púnktum: Úkraína gefi út yfirlýsingu um hlutleysi og ekki verði sótt um aðild að NATO. Rússland flytji herlið sitt án tafar á brott frá Úkraníu. Gerður verði friðarsamningur með skuldbindingum frá NATO og Rússlandi að hlutleysi Úkraínu verði virt. NATO skuldbindi sig að veita Úkraníu vernd brjóti Rússland samkomulagið. Friðargæslulið frá Sameinuðu Þjóðunum verði sent til Donbas á meðan unnið er að langvarandi friðarlausn á svæðinu. Kosningar undir alþjóðlegu eftirliti fari fram í Donetsk og Luhansk um hvort íbúar þar óski að vera sjálfstæð ríki eða hluti af Úkraníu. Allir aðilar virði niðurstöður slíkra kosninga. Úkraníu verði boðin aðild að Evrópska efnahagssvæðinu með EEA samningi sambærilegt við það sem EFTA löndin sömdu um. Þetta mun veita Úkraníu aðgang m.a. að markaðssvæði Evrópu og Shengen á meðan utanríkis- og varnarmál eru áfram sjálfstæð. Flóttamenn frá Úkraníu og Rússlandi Evrópuríkin hafa opnað fyrir flóttamenn frá Úkraníu. Friður 2000 leggur til að einnig verði opnað fyrir flóttamenn frá Rússlandi. Fjöldi ungra manna á herskyldualdri vilja ekki herja stríð gegn bræðrum sínum og systrum í Úkraníu. Við eigum að veita þeim tækifæri að yfirgefa Rússland og fá skjól í Evrópu á meðan stjórnvöld þar í landi eru að herja á nágranna sína. Við þurfum að sameinast um að gera greinarmun á valdhöfum sem komnir eru út af sporinu og almennum borgurum sem styðja ekki ofbeldi og vilja lifa friðsömu lífi. Við eigum að fordæma stríðsaðgerðir allra aðila sem nú stefna mannkyninu í útrýmingarhættu. Fremstur í flokki fer forseti Rússlands en ekki má gleyma aðild forseta Úkraníu og Íslands sem báðír berja stríðsbumbur hergagnaframleiða sem maka krókinn á hörmungunum. Forseta Íslands afhjúpaði hversu veruleikafirrtur hann er þegar hann lýsti því yfir á RÚV að Íslendingum stafi engin hætta af þessari styrjöld. Það má hverju mannsbarni á Íslandi vera ljóst að ef við gegnum hlutverki áróðurs og hergagnamiðstöðvar verðum við skotmark í styrjöldinni. Höfundur er stofnandi Friðar 2000. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Innrás Rússa í Úkraínu Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson Ástþór Magnússon Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason ,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun