Erlent

Pútín vill styrkja stöðu sína fyrir fund með Selenskí

Samúel Karl Ólason skrifar
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, á fjöldafundi í Moskvu í gær.
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, á fjöldafundi í Moskvu í gær. EPA/RAMIL SITDIKOV

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er ekki tilbúinn til viðræðna við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Hann vill líklega styrkja stöðu sína fyrir mögulegar viðræður.

Þetta segir Ibrahim Kalin, ráðgjafi og talsmaður Receps Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, í viðtali við New York Times. Erdogan, forseti Tyrklands, ræddi við bæði Pútín og Selenskí í síma í síðustu viku og Kalin hlustaði á bæði símtölin.

Tyrkir eiga í góðum samskiptum við bæði Rússa og Úkraínumenn og hafa verið að miðla mála þeirra á milli.

Fylgjast má með nýjustu vendingum í Úkraínu í vakt Vísis.

Kalin segir að Pútín hafi sagt viðræður milli erindreka Rússlands og Úkraínu ekki nægjanlega langt komnar til að réttlæta fund með Selenskí. Hann segir einnig að Pútín vilji ekki lengur koma Selenskí frá völdum og segir rússneska forsetann hafa sætt sig við að sá úkraínski sé leiðtogi Úkraínumanna, hvort sem Pútín sjálfum líki það betur eða verr.

Mögulega langt í fund

Selenskí hefur ítrekað kallað eftir fundi með Pútín en án árangurs.

„Ég hef trú á því að fundur muni fara fram þeirra á milli á einhverjum tímapunkti,“ sagði Kalin. Hann sagðist telja að Pútín vildi vera í sterkari stöðu og forðast það að virðast veikburða vegna slæms árangurs rússneska hersins, ef svo má að orði komast, eða vegna refsiaðgerða og viðskiptaþvingana.

Kalin sagði að mögulega gæti það tekið langan tíma. Hann sagði að refsiaðgerðirnar hefðu líklegast mest áhrif á þankagang Pútíns.

Erfiðustu kröfurnar eftir

Viðræður áðurnefndra erindreka hafa ekki enn snúið að erfiðustu kröfum Rússa. Það er að Úkraínumenn viðurkenni eignarrétt Rússlands á Krímskaga og sjálfstæði Luhansk og Donetsk í Donbas-héraði.

Kalin segir að Úkraínumenn vilji friðarsamkomulag sem fyrst en án þess að fórna fullveldi sínu eða landsvæði. Hann segir það geta orðið mjög erfitt að komast að niðurstöðu þar. Rússar innlimuðu Krímskaga ólöglega árið 2014 en Kalin segir að sú innlimun verði líklega ekki samþykkt.


Tengdar fréttir

Segir Pútín óttast frelsi og lýðræði í Úkraínu

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa ráðist inn í Úkraínu, því frjáls og lýðræðisleg Úkraína væri ógn gagnvart alræðisstjórn hans í Rússlandi.

Fjármálaráðherra útilokar ekki inngrip haldi miklar eldsneytishækkanir áfram

Fjármálaráðherra útilokar ekki að ríkið lækki tímabundið álögur á eldsneytisverð fari verð þess upp í hæstu hæðir. Það sé hins vegar ekki verið að horfa til þeirra leiðar nú til að ná verðbólgunni niður. Heldur fyrst og fremst sértækra aðgerða fyrir tekjulægstu hópa samfélagsins.

Skutu ofurhljóðfrárri eldflaug í fyrsta sinn í átökum

Rússar segjast hafa skotið ofurhljóðfrárri eldflaug á vopnageymslu í vesturhluta Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar segjast hafa notað slíkt vopn í átökum en eldflaugar þessar eru hannaðar til að ferðast á margföldum hljóðhraða og komast hjá eldflaugavörnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×