Landin var með samning við Kiel til 2025 en nýtti sér sérstaka fjölskylduklásúlu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2022 13:00 Niklas Landin í símanum á leið heim eftir heimsmeistaratitil Dana árið 2021. EPA-EFE/Mads Claus Rasmussen Danski landsliðsmarkvörðurinn Niklas Landin er á leiðinni til danska félagsins Aalborg Håndbold og komu félagsskiptin mikið á óvart ekki síst þar sem hann átti eftir þrjú ár af nýjum samningi sínum við Kiel.
Landin nýtti sér sérstakt ákvæði í samningi sínum þar sem hann gat losað sig vegna fjölskylduástæðna. „Við förum heim vegna fjölskylduástæðna. Þetta er það sem fjölskyldan taldi vera best eftir þær áskoranir sem við höfum glímt við síðasta árið,“ sagði Niklas Landin við TV2. Hann er búinn að spila í Þýskalandi í ellefu ár, fyrst með Rhein-Neckar Löwen 2012 til 2015 og svo með Kiel frá árinu 2015. Niklas Landin kehrt 2023 in seine dänische Heimat zurück.Der 33-jährige dänische Torhüter machte von einer Klausel in seinem Vertrag Gebrauch, die ihm aus familiären Gründen einen Wechsel in die Heimat ermöglicht.#skyhandball #handball pic.twitter.com/TILXfeVOkq— Sky Sport (@SkySportDE) April 4, 2022 „Kiel vissi vel af þessari klásúlu í samningi mínum um fjölskylduástæðurnar. Þeir voru auðvitað ekki ánægðir að heyra þetta en um leið sýndu þau mér skilning af því að fjölskyldan er mér mikilvæg. Ef fjölskyldumálin eru í ólestri þá virkar þú ekki heldur sem handboltamaður,“ sagði Landin. Landin hafði skrifað undir nýjan samning við Kiel fyrir aðeins mánuði síðan. Kiel greindi jafnframt frá því að Álaborg þarf að kaupa upp samninginn hans Landin en sú upphæð var þó ekki gefin út. OFFICIELT: Niklas Landin skifter til Aalborg Håndbold - https://t.co/jixyhAkvER pic.twitter.com/F0LaHBe2jj— HBOLD.dk (@HBOLDdk) April 4, 2022 „Vegna kórónuveirunnar þá hafa margir tekið eftir því hvað það þýðir að vera án fjölskyldu sinnar og geta ekki heimsótt hana eins og venjulega. Við vorum samt hissa á ákvörðun Niklas að snúa heim til Danmerkur áður en samningurinn rann út. Þetta býr til alvöru áskorun fyrir okkur en við munum reyna að bregðast við henni,“ sagði Viktor Szilágyi, íþróttastjóri Kiel við TV2.
Handbolti Þýski handboltinn Danski handboltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Íslenski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Leik lokið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Miklu sterkari í lokin Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Fleiri fréttir FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Sjá meira