Innlent

Áhyggjufullur yfir slasaðri súlu á Vatnsleysuströnd

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Fuglinn hefur haldið til við bæi í kring undanfarinn sólarhring.
Fuglinn hefur haldið til við bæi í kring undanfarinn sólarhring. Mynd/Aðsend

Staðarhaldari á Vatnsleysuströnd segist ítrekað hafa reynt að ná í yfirvöld án árangurs vegna vængbrotinnar súlu sem hefur verið á svæðinu undanfarið. Lögregla hefur ekki viljað koma nálægt henni af ótta við fuglaflensu. 

Virgill Scheving Einarsson, staðarhaldari á Vatnsleysuströnd, segir súluna hafa haldið mest til  við bæinn Skjaldarkot en hún virðist að hans sögn vængbrotin. 

Hann greinir frá því í samtali við fréttastofu að það hafi fyrst verið hringt í yfirvöld vegna súlunnar í gær en nú síðast í morgun, en það er einmitt það sem Matvælastofnun hefur mælt með að fólk geri verði það vart við veika fugla. 

„Þeir bera það fyrir sig í Keflavík að þeir séu hræddir að snerta hann, að hann sé með fuglaflensuna,“ segir Virgill um svör lögreglunnar í tengslum við málið. „Svo er búið að vera lokað í dag, engan hægt að ná, og fuglinn er bara hérna.“

Fuglaflensa hefur komið upp í nokkrum viltum fuglum, þar á meðal súlu á Reykjanesi, en Matvælastofnun hefur biðlað til fólks að láta veika fugla vera. 

Virgill segir að fuglinn virðist hraustur, fyrir utan vængbrotið, og því ætti að vera hægt að bjarga honum. 

„Ég hef ekki snert hann en hann er að koma hérna heim að bæjunum en hann er að reyna að komast út á sjó,“ segir hann.

Hann bindur vonir við að einhver bjargi fuglinum, mögulega Húsdýragarðurinn. 


Tengdar fréttir

„Þetta er inflúensuveira sem getur stökkbreyst mjög auðveldlega”

Yfirdýralæknir segir alvarlegt ef smit af skæðu fuglaflensuafbrigði berst inn á alifuglabú. Veiran getur drepið fugla á tveimur dögum. Heimilishænsn eru fyrstu heimilisdýrin á Íslandi sem hafa greinst með veiruna. MAST hefur útbúið kort sem sýnir útbreiðslu smita og sýna sem hafa verið tekin. 

Fuglaflensa staðfest í hænunum á Skeiðum

Fuglaflensan hefur nú greinst í heimilishænum en sýni voru tekin úr hænum á bænum Reykjum á Skeiðum í síðustu viku. Tilkynnt var um það síðastliðinn föstudag að fuglaflensa hefði greinst í þremur villtum fuglum, þar á meðal í hrafni sem fannst dauður á Skeiðum. Þá var sterkur grunur um að hænurnar á Skeiðum væru smitaðar sem hefur nú verið staðfest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×