Umfjöllun fjölmiðla um réttarhöldin eru orðin að vinsælli dægradvöl um allan heim, enda bjóða þau upp á öll helstu innihaldsefni góðrar sögu: Frægt og fallegt fólk, kynlíf, glæpi og refsingu.
Leikaraparið kynntist árið 2009 við tökur á kvikmyndinni Rum Diaries. Þau giftu sig 2015, en skildu rúmu ári síðar og var sá skilnaður frekar subbulegur. Árið 2018 skrifaði Heard grein í Washington Post þar sem hún lýsir ofbeldi af hálfu ónafngreinds manns, sem augljóslega var Johnny Depp, og upphófst þar með mikið stríð með lögsóknum, stríðsfyrirsögnum og forsíðufréttum - sem stendur enn.
Ásakanir um ofbeldi á víxl
Yfirstandandi réttarhöld snúast um lögsókn Depp gegn Heard vegna greinarinnar, þar sem hann er sakaður um ofbeldi sem hann segist saklaus af. Honum hafði áður mistekist að sækja málið fyrir breskum dómstólum. Eins og gerist gjarnan í svona málum, þá eru báðar stjörnurnar neyddar til að bera öll leyndarmál sín á torg og heldur ókræsilegar beinagrindur koma flæðandi út úr skápunum. Þau saka hvort annað um ofbeldi, ferill þeirra beggja hefur boðið óafturkræfa hnekki.
Drekkja, brenna og passa svo að hún sé dauð
Síðan hafa enn fleiri stjörnur dregist inn í málið, eins og Hollywoodleikarinn Paul Bettany, sem Depp átti í heldur ósmekklegum sms-samskiptum við árið 2013. Lögmaður Heard las hluta skilaboðanna upp fyrir dómi.
Rottenborn: „Brennum Amber!!! Þrjú upphrópunarmerki. Sérðu þetta?“
Depp: „Ég sé þetta.“
Rottenborn: „Svo skrifarðu meira eftir þetta. Ég vil biðjast afsökunar á orðfærinu sem ég þarf að nota í dag, því miður eigum við eftir að sjá mikið af gögnum með svona orðanotkun,“ segir J. Benjamin Rottenborn, lögmaður Heard. „Svo segirðu: Drekkjum henni áður en við brennum hana. Svo segirðu: Ég ætla að ríða brenndu líkinu á eftir til að ganga úr skugga um að hún sé dauð. Og þú skrifaðir þetta um konuna sem þú áttir svo eftir að giftast?“
Depp: „Já, ég gerði það.“
Bettany virðist hafa reynt að draga í land í samskiptunum og segir, að því er virðist í léttum tón, að þeir ættu nú að láta vera að brenna Amber.