Erlent

Segir það frábæra hugmynd Trumps að kaupa Grænland

Kristján Már Unnarsson skrifar
Carla Sands og Kim Kielsen í sendiherrabústaðnum í Kaupmannahöfn árið 2019 að skoða kort af norðurslóðum.
Carla Sands og Kim Kielsen í sendiherrabústaðnum í Kaupmannahöfn árið 2019 að skoða kort af norðurslóðum. Sendiráð Bandaríkjanna í Danmörku.

Carla Sands, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, hefur opinberlega hrósað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fyrir að hafa viljað kaupa Grænland. Hugmynd Trumps hafi verið frábær þar sem Danir hafi hvorki efni á að byggja upp Grænland né getu til að verja það.

Carla Sands sækist núna eftir útnefningu sem frambjóðandi Repúblikanaflokksins til sætis öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir Pennsylvaníuríki. Í kappræðum, sem sjónvarpað var frá Pittsburgh síðastliðið miðvikudagskvöld, spurði hinn þekkti þáttastjórnandi, Greta van Susteren, hvað henni fyndist um hugmynd Trumps að kaupa Grænland:

„Mér fannst þetta frábær hugmynd, því hann er samningamaður. Og við vitum að Danmörk hefur hvorki efni á að byggja upp né verja Grænland,“ svaraði Carla Sands, en Sermitsiaq fjallar um málið og vitnar í The Daily Beast.

Carla Sands var áður kunn sjónvarps- og kvikmyndaleikkona, meðal annars úr sápuóperunni Glæstum vonum eða The Bold and the Beautiful. Þessi forríka ekkja var einnig rausnarlegur stuðningsmaður kosningasjóða Trumps.

Carla Sands á fjarfundi með Kim Kielsen haustið 2020 þegar nýr samningur um Thule-herstöðina var gerður.Sendiráð Bandaríkjanna í Danmörku.

Í sendiherratíð sinni lagði Carla Sands sig sérstaklega fram um að efla tengsl Bandaríkjamanna og Grænlendinga, og raunar einnig Færeyinga, bæði með heimsóknum sem og með persónulegum tengslum. Þannig bauð hún Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, í heimsókn á heimili sitt í sendiherrabústaðnum í Kaupmannahöfn.

Carla Sands sýnir Kim Kielsen garðinn við bandaríska sendiherrabústaðinn í Kaupmannahöfn sumarið 2019.Sendiráð Bandaríkjanna í Danmörku

Ósk Trumps um að fá að kaupa þetta næsta nágrannaland Íslands fyrir þremur árum vakti heimsathygli og Grænland fékk fyrir vikið meiri umfjöllun í fjölmiðlum heimsins en nokkru sinni fyrr. Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, sagði tilboð Trumps hins vegar fáránlegt, sem varð til þess að Trump móðgaðist og aflýsti heimsókn sinni til Danmerkur með skömmum fyrirvara.

Kim Kielsen var um sama leyti staddur í Reykjavík á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna og svona svaraði hann Stöð 2 um ósk Trumps:

Hér má sjá þegar Trump staðfesti áhuga sinn á að kaupa Grænland:


Tengdar fréttir

Grænlendingar sömdu um Thule-herstöðina án undirskriftar Dana

Samningar sem landsstjórn Grænlands gerði við Bandaríkjastjórn í vikunni um Thule-herstöðina, eitt hernaðarlega mikilvægasta mannvirki norðurslóða, voru án formlegrar aðildar ríkisstjórnar Danmerkur. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist.

Færeyjar og Bandaríkin treysta vinasamstarfið

Færeyjar og Bandaríkin hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu sem mótar ramma að auknu samstarfi landanna. Grunnurinn var lagður á fundi Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með forystumönnum Færeyja og Grænlands í Kaupmannahöfn síðastliðið sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×