Lífið

Sigurvegari fyrsta ameríska Eurovision krýndur

Elísabet Hanna skrifar
Snoop Dogg og Kelly Clarkson.
Snoop Dogg og Kelly Clarkson. Getty/Rodin Eckenroth

*Höskuldarviðvörun* Fyrsti sigurvegari Amerísku Söngvakeppninnar hefur verið krýndur. Keppnin fór í gang fyrr á árinu og hefur staðið yfir í átta vikur sem ameríska útgáfan af Eurovision. 

Keppnin stóð yfir í átta vikur

Í keppninni hafa keppendur flutt frumsamin lög sem keppa um atkvæði þjóðarinnar og voru margar stjörnur búnar að taka að sér hlutverk flytjanda eins og Michael Bolton, Jewel, Macy Grey og Sisqó. Það var þó engin af þessum stjörnum sem hlutu titilinn.

Það voru þeu Kelly Clarkson og Snoop Dogg sem voru kynnar og skemmtu áhorfendum. Lokakvöldið fór fram í Universal Studios í Los Angeles. Martin Österdahl, formaður Eurovision hefur gefið út að fleiri lönd muni koma í Eurovision fjölskylduna en Kanada ætlar að halda sína eigin keppni á næsta ári líkt og Bandaríkin.

Fyrsti sigurvegarinn

Áður en lesið er lengra vill blaðamaður impra á *Höskuldarviðvörun*

Á lokakvöldi keppninnar voru það tíu lög sem stóðu eftir og kepptu um titilinn. Það var K-pop stjarnan AleXa sem sigraði keppnina og varð þar með fyrsti sigurvegari Amerísku Söngvakeppninnar. 

„Þetta tækifæri hefur verið ein besta reynsla lífs míns!!“

sagði hún meðal annars í færslu á samfélagsmiðlum sínum. Hún er 25 ára gömul og var að keppa fyrir fylkið sitt Oklahoma með elektró pop laginu Wonderland. Riker Lynch frá Colorado fylkinu var í öðru sæti og Jordan Smith frá Kentucky í því þriðja.

K-pop ferill

AleXa er fædd og uppalin í Tulsa Oklahoma en ákvað 21 árs gömul að flytja til Suður-Kóreu þar sem hún hefur átt farsælan K-pop feril, gefið út níu stök lög og tvær EP plötur. Cazzi Opeia er ein af meðhöfundum lagsins en hún lenti í níunda sæti á sænska Melodifestivalen á þessu ári. 

Stig kvöldsins voru gefin út í sönnum Eurovision stíl og var spennan gríðarleg. Í tilefni þess að hafa sigrað keppnina mun AleXa koma fram á Billboard tónlistarverðlaununum og lagið mun óma á útvarpsstöðvun IHeart Radio.

Hér að neðan má sjá viðbrögð AleXu þegar hún sigraði keppnin:


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.