Innlent

Lokatölur í Múlaþingi: Tveir flokkar fengu þrjá fulltrúa

Ritstjórn skrifar
Þessir ellefu fulltrúar náðu kjöri í Múlaþingi
Þessir ellefu fulltrúar náðu kjöri í Múlaþingi Vísir

Tveir flokkar fengu þrjá fulltrúa kjörna í fyrstu sveitarstjórnarkosningunum í Múlaþingi. 

Á kjörskrá í Múlaþingi eru 3.663. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn. Múlaþing varð til árið 2020 við sameiningu Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðarhrepps  og Djúpavogshrepps og eru þetta því fyrstu sveitarstjórnarkosningarnar í sveitarfélaginu.

Fimm flokkar buðu fram:

  • B-listi Framsóknarflokksins
  • D-listi Sjálfstæðisflokksins
  • L-listi Austurlistans
  • M-listi Miðflokksins
  • V-listi Vinstri grænna

Sjálfstæðisflokkurinn fékk mest fylgi eða 28 prósent og þrjá fulltrúa. Framsókn fékk 24,1 prósent, bætti við sig manni og fékk þrjá fulltrúa. Austurlistinn fékk 19,3 prósent atkvæða og tvo fulltrúa og Vinstri græn fengu 20,2 prósent fylgi sem skilaði flokknum einnig tveimur fulltrúum og bættu þau við sig manni. Miðflokkurinn fékk 8,5 prósenta fylgi og einn fulltrúa.

Að neðan má sjá niðurstöðuna í Múlaþingi.

Eftirfarandi náðu kjöri í bæjarstjórn:

  • Jónína Brynjólfsdóttir (B)
  • Vilhjálmur Jónsson (B)
  • Björg Eyþórsdóttir (B)
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir (D)
  • Ívar Karl Hafliðason (D)
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir (D)
  • Hildur Þórisdóttir (L)
  • Eyþór Stefánsson (L)
  • Þröstur Jónsson (M)
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson (V)
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir (V)
Um er að ræða fyrstu sveitarstjórnarkosningarnar í Múlaþingi.Vísir/Vilhelm


Tengdar fréttir

Nýjustu tölur úr Fjallabyggð

Sjálfstæðisflokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum og nær tveimur inn en Jafnaðarfólk og óháðir nældu í þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur frá Vestmannaeyjum

Allt er óbreytt í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Meirihluti Eyjalistans og Fyrir Heimaey hélt velli í kosningunum, hefur nú fimm fulltrúa af níu en hafði áður fjóra af sjö.

Nýjustu tölur úr Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarlistinn kom, sá og sigraði í sveitarstjórnarkosningunum í Ísafirði þetta árið. Flokkurinn náði fimm fulltrúum af níu og náði þar með meirihlutanum með því að stela fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum.

Nýjustu tölur úr Reykjanesbæ

Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu.

Nýjustu tölur úr Fjarðabyggð

Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra heldur. Framsókn bætir við sig einum en Fjarðalistinn missir tvo.

Nýjustu tölur frá Akranesi

Framsóknarflokkurinn bætti við sig einum manni í bæjarstjórn á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin og Framsókn eru í meirihluta og halda honum örugglega. 

Nýjustu tölur úr Árborg

Sjálfstæðisflokkurinn bættir við sig tveimur fulltrúum í sveitarfélaginu Árborg og er nú með hreinan sex fulltrúa meirihluta. Framsókn bættir sömuleiðis við einum fulltrúa og hefur nú tvo. Miðflokkurinn missir sinn eina bæjarfulltrúa en Samfylking og Áfram Árborg halda sínum mönnum.

Nýjustu tölur úr Mosfellsbæ

Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt.

Nýjustu tölur úr Garðabæ

Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum.

Nýjustu tölur frá Akureyri

Bæjarlistinn er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta eftir kosningarnar. Flokkurinn bætir við sig fulltrúa og er stærstur í bæjarstjórn með þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur frá Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn halda sex fulltrúa meirihluta í Kópavogi að loknum sveitarstjórnarkosningunum í nótt. Vinir Kópavogs, nýtt framboð, náði inn tveimur bæjarfulltrúum.

Nýjustu tölur frá Hafnarfirði

Samfylkingin bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn er á pari við Sjálfstæðisflokkinn en hvor flokkur er með fjóra bæjarfulltrúa.

Nýjustu tölur frá Reykjavík

Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×