Ljóða-Valdi málaður upp sem barnapervert á Facebook Jakob Bjarnar skrifar 18. maí 2022 11:09 Ljóða-Valdi segist blásaklaus, hann hafi ekki haft neitt illt í hyggju þegar hann í hugsunarleysi tók mynd af stúlku í Nettó. En hann er nú málaður upp sem ógeð á Facebook. wikipedia/haukur þorgeirsson Valdimar Tómasson, sem betur er þekktur sem Ljóða-Valdi en hann er eitt þekktasta ljóðskáld landsins, var gripinn við þá iðju að taka mynd af stúlku í Nettó. Hann var umsvifalaust málaður upp sem barnapervert á Facebook sem Valdimar segir algerlega úr lausu lofti gripið. Færsla birtist á Facebook í gærkvöldi þar sem sjá mátti myndir af Valda og hann sakaður um að hafa verið í vafasömum tilgangi að taka myndir af stúlkubarni í Nettó. Valdi segir þetta á misskilningi byggt og að hann hafi varla verið með sjálfum sér eftir að færslan birtist, svohljóðandi: „Ég skrapp í Nettó rétt í þessu og hitti fyrir vinapar mitt og við spjöllum saman í stutta stund og fyrir algjöra tilviljun sér vinur minn að það er maður að mynda korn unga dóttur þeirra í bak og fyrir. Þegar vinur minn biður hann um að eyða myndunum var hann ekkert að ætla að gera það svo við rifum símann af honum og þar voru fleiri fleiri myndir af stúlkunni sem hafði vafrað aðeins frá okkur. Við náðum að eyða öllum myndum af stelpunni og maðurinn hljóp ut. Áður en hann naði að drulla sér út náði ég myndum af þessu ógeði og ætla ég að láta þær fylgja með og biðja ykkur foreldra að vera á varðbergi gagnvart þessum manni sem hafði greinilega eitthvað annað en góðmennsku í huga. Haft var samband við lögreglu og hún er nú að ræða við foreldrana sem eru auðvitað allt annað en sáttir og skil ég þau vel. Deilið þessu að vild og passið fallegu börnin ykkar vel, meira að segja þó að þig séuð í saklausri verlunarferð“ Þessi skilaboð ásamt myndum af Valdimar hafa farið sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum í gær og í dag. „Nei, þetta er ekkert grín,“ segir Valdimar og hafnar því alfarið að hafa verið með eitthvað misjafnt í hyggju; „einhverja hluti sem mér datt ekki í hug. Hún var með drullusokk í hendi og ég hugsaði með mér, þetta er eins og pólitíkin í dag.“ Kallaður öllum illum nöfnum og hótað Valdimar segir að fólkið hafi komið að sér með offorsi og hafi látið sig eyða myndunum úr síma sínum sem hann og gerði. „Þetta var hugsunarleysi hjá mér. En svo tekur þetta fólk myndir af mér og dreifir á netið. Svona er mómentið. Ég hef varla geta étið fljótandi né fast eftir að þetta kom upp,“ segir Valdimar. Skáldið segir að þetta hljóti að líða hjá. Hann finni að á bak við sig sé hópur fólks sem leggi engan trúnað við þetta. Hann væri löngu kominn á sakaskrá ef hann væri svona innréttaður eins og gefið er til kynna. Á þræðinum undir færslunni er Valdi nafngreindur, kallaður öllum illum nöfnum og þar er boðað að honum verði velgt undir uggum. Spurður hvort einhver hafi fylgt þeim hótunum eftir segir Valdimar að einhverjar hringingar hafi hann fengið, með númerum sem hann hefur ekki þekkt og hann þá ekki svarað. Lögreglan segist ekkert geta gert Valdimar segir það svo að hér sé um að ræða dæmi um aftöku án dóms og laga. „Já, ég fór til lögreglu og gaf skýrslu og þeir segjast ekkert geta gert annað en svara þessu á miðlum. Ég játa á mig hugsunarleysi,“ segir Valdimar. Valdimar er nánast hluti bæjarmyndarinnar, en hann fer daglega í langa göngutúra um miðborgina. Spurður hvort hann óttist ekki að verða fyrir árásum segir hann að það verði þá bara að vera þannig. „Ég get ekkert við því gert. Ég held samt að stór hópur trúi þessu ekkert.“ Lögreglumál Reykjavík Samfélagsmiðlar Ljóðlist Stafrænt ofbeldi Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira
Færsla birtist á Facebook í gærkvöldi þar sem sjá mátti myndir af Valda og hann sakaður um að hafa verið í vafasömum tilgangi að taka myndir af stúlkubarni í Nettó. Valdi segir þetta á misskilningi byggt og að hann hafi varla verið með sjálfum sér eftir að færslan birtist, svohljóðandi: „Ég skrapp í Nettó rétt í þessu og hitti fyrir vinapar mitt og við spjöllum saman í stutta stund og fyrir algjöra tilviljun sér vinur minn að það er maður að mynda korn unga dóttur þeirra í bak og fyrir. Þegar vinur minn biður hann um að eyða myndunum var hann ekkert að ætla að gera það svo við rifum símann af honum og þar voru fleiri fleiri myndir af stúlkunni sem hafði vafrað aðeins frá okkur. Við náðum að eyða öllum myndum af stelpunni og maðurinn hljóp ut. Áður en hann naði að drulla sér út náði ég myndum af þessu ógeði og ætla ég að láta þær fylgja með og biðja ykkur foreldra að vera á varðbergi gagnvart þessum manni sem hafði greinilega eitthvað annað en góðmennsku í huga. Haft var samband við lögreglu og hún er nú að ræða við foreldrana sem eru auðvitað allt annað en sáttir og skil ég þau vel. Deilið þessu að vild og passið fallegu börnin ykkar vel, meira að segja þó að þig séuð í saklausri verlunarferð“ Þessi skilaboð ásamt myndum af Valdimar hafa farið sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum í gær og í dag. „Nei, þetta er ekkert grín,“ segir Valdimar og hafnar því alfarið að hafa verið með eitthvað misjafnt í hyggju; „einhverja hluti sem mér datt ekki í hug. Hún var með drullusokk í hendi og ég hugsaði með mér, þetta er eins og pólitíkin í dag.“ Kallaður öllum illum nöfnum og hótað Valdimar segir að fólkið hafi komið að sér með offorsi og hafi látið sig eyða myndunum úr síma sínum sem hann og gerði. „Þetta var hugsunarleysi hjá mér. En svo tekur þetta fólk myndir af mér og dreifir á netið. Svona er mómentið. Ég hef varla geta étið fljótandi né fast eftir að þetta kom upp,“ segir Valdimar. Skáldið segir að þetta hljóti að líða hjá. Hann finni að á bak við sig sé hópur fólks sem leggi engan trúnað við þetta. Hann væri löngu kominn á sakaskrá ef hann væri svona innréttaður eins og gefið er til kynna. Á þræðinum undir færslunni er Valdi nafngreindur, kallaður öllum illum nöfnum og þar er boðað að honum verði velgt undir uggum. Spurður hvort einhver hafi fylgt þeim hótunum eftir segir Valdimar að einhverjar hringingar hafi hann fengið, með númerum sem hann hefur ekki þekkt og hann þá ekki svarað. Lögreglan segist ekkert geta gert Valdimar segir það svo að hér sé um að ræða dæmi um aftöku án dóms og laga. „Já, ég fór til lögreglu og gaf skýrslu og þeir segjast ekkert geta gert annað en svara þessu á miðlum. Ég játa á mig hugsunarleysi,“ segir Valdimar. Valdimar er nánast hluti bæjarmyndarinnar, en hann fer daglega í langa göngutúra um miðborgina. Spurður hvort hann óttist ekki að verða fyrir árásum segir hann að það verði þá bara að vera þannig. „Ég get ekkert við því gert. Ég held samt að stór hópur trúi þessu ekkert.“
„Ég skrapp í Nettó rétt í þessu og hitti fyrir vinapar mitt og við spjöllum saman í stutta stund og fyrir algjöra tilviljun sér vinur minn að það er maður að mynda korn unga dóttur þeirra í bak og fyrir. Þegar vinur minn biður hann um að eyða myndunum var hann ekkert að ætla að gera það svo við rifum símann af honum og þar voru fleiri fleiri myndir af stúlkunni sem hafði vafrað aðeins frá okkur. Við náðum að eyða öllum myndum af stelpunni og maðurinn hljóp ut. Áður en hann naði að drulla sér út náði ég myndum af þessu ógeði og ætla ég að láta þær fylgja með og biðja ykkur foreldra að vera á varðbergi gagnvart þessum manni sem hafði greinilega eitthvað annað en góðmennsku í huga. Haft var samband við lögreglu og hún er nú að ræða við foreldrana sem eru auðvitað allt annað en sáttir og skil ég þau vel. Deilið þessu að vild og passið fallegu börnin ykkar vel, meira að segja þó að þig séuð í saklausri verlunarferð“
Lögreglumál Reykjavík Samfélagsmiðlar Ljóðlist Stafrænt ofbeldi Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira