Innlent

Kynna nýjan meirihluta í Grindavík

Kjartan Kjartansson skrifar
Fulltrúar flokkanna handsala samkomulag um meirihluta í Grindavík.
Fulltrúar flokkanna handsala samkomulag um meirihluta í Grindavík. Aðsend

Framsókn, Rödd unga fólksins og Sjálfstæðisflokkurinn hafa myndað nýjan meirihluta í Grindavík. Bæjarfulltrúar framboðanna undirrituðu málefnasamning um verkefni og samstarf í dag.

Í tilkynningu frá flokkunum kemur fram að nýr forseti bæjarstjórnar verði Ásrún H. Kristinsdóttir frá Framsóknarflokknum til að byrja með. Þriðja ár kjörtímabilisins taki Helga Dís Jakobsdóttir, fulltrúi Raddar unga fólksins, við embættinu. Formaður bæjarráðs verður Hjálmar Hallgrímsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Fannar Jónasson bæjarstjóri verður endurráðinn.

Málefnasamningurinn verður birtur að loknum fyrsta bæjarstjórnarfundi nýrrar bæjarstjórnar sem fram fer þriðjudaginn 7. júní.

Áframhaldandi áhersla er sögð verða lögð á góða samvinnu fulltrúa í bæjarstjórn og að allir séu vel upplýstir um mál sem koma til umfjöllunar og eða afgreiðslu.

„Framundan eru metnaðarfull verkefni sem unnin verða í góðu samstarfi bæjarfulltrúa og íbúa Grindavíkurbæjar. Grindavík er gott bæjarfélag en mikilvægt er hugsa til framtíðar og stefna hátt til að gera góðan bæ enn betri. Nauðsynlegt er að styðja við uppbyggingu innviða og þjónustustigs í samræmi við íbúafjölda,“ segir í yfirlýsingu nýja meirihlutans




Fleiri fréttir

Sjá meira


×