Uppskriftina úr þættinum má sjá hér að neðan.
Kjúklingasamloka með Bourbon-Beikon sultu
- Kjúklingur
- 6 kjúklingalæri úrbeinuð
- 200 ml safi af súrum gúrkum
- 1 msk teriyaki
- 2 msk púðursykur
- 2 msk olía
- salt og pipar
Súrdeigsbrauð með kryddjurtaolíu
- súrdeigsbrauð
- 1/2 búnt basil
- 1/2 búnt steinselja
- salt og pipar
- hvítlauksrif
- olía
Bourbon-Beikon sulta
- 8 sneiðar beikon
- 1 1/2 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 200 gr púðursykur
- 200 ml Bourbon
- 3 msk kurlaður ananas
- 2 msk Balsamic edik
- 2 msk soya sósa
- 2 msk teriyaki sósa
- 2 msk Worchester sósa
- 1 msk tabasco
- 1 msk laukduft
- 2 msk paprikuduft
- 1 msk cayenne pipar
- 1 msk chilli pipar
- salt og pipar

Aðferð:
- Saxið beikon og steikið í 5 mín, saxið lauk og hvítlauk og setjið einnig á pönnuna. Steikið blönduna í 5 - 10 mín. Setjið öll önnur innihaldsefni á pönnuna og sjóðið á miðlungshita í 40 - 50 mín. Hrærið öðru hvoru.
- Íssalat, tómatar, gúrka, rauðlaukur skorinn í samlokuvænar sneiðar.
- Blandið gúrkusafa,teriyaki og púðusykri saman og marinerið kjúlla í blöndunni í 1 klst í kæli. Takið kjúkling úr kæli og þerrið. Steikið kjúlla á grillpönnu upp úr olíu í 10 - 15 mín.
- Blandið kryddolíu með töfrasprota, skerið brauð í sneiðar, penslið brauð með olíu og grillið á pönnu. Muna eftir að salta sneiðar.
Setjið saman og njótið.