Innlent

Töf Sam­herja­málsins valdi réttar­spjöllum ofan á orð­spors­á­hættu

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar. Vísir/Vilhelm

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, telur að töf á rannsókn Samherjamálsins geti valdið réttarspjöllum ofan á þá „orðsporsáhættu sem augljós er“. Hún segir embætti héraðssaksóknara og skattrannsóknarstjóra vanfjármögnuð og sakar fjármálaráðherra um að kæra sig kollóttan um fjárhagsskort embættanna.

Fjallað var um það í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að Drago Kos, yfirmaður vinnuhóps OECD gegn mútum, segir að það sé vandræðalegt fyrir Ísland að yfirvöld í Namibíu dragi vagninn í rannsókn á Samherjamálinu. Hann sagði stjórnvöld verða að finna fjármagn og veita héraðssaksóknara til að klára málið eins fljótt og hægt er.

„Fráleitt“ að veita aukið fjámagn

„Það að ekki sé verið að standa með fullnægjandi hætti að rannsókn á mögulegu risastóru alþjóðlegu mútubroti getur þannig haft veruleg áhrif á samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum mörkuðum,“ skrifar Helga Vala í færslu sinni á Facebook.

Hún segir Samfylkinguna hafa rætt alvarlega stöðuna í þinginu eftir að Samherjamálið var afhjúpað og lagt til að aukið fjarmagn yrði veitt til embættanna.

„Það þótti fjármálaráðherra alveg fráleitt og sagði að ef þessi embætti þyrftu frekari fjármuni þyrftu þau bara að koma til sín með slíka bón.“

Hún segir töf á auknu fjámagni geta slík töf valdið réttarspjöllum „ofan á þá orðsporsáhættu sem augljós er.“ 

„Þetta er staðan og hún er í boði Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnarinnar allrar,“ skrifaði Helga að lokum.

Spillt stjórnkerfi sé undirrótin

Eftir að Kveiksþátturinn birtist um Samherjaskjölin í nóvember 2019 var Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra inntur eftir viðbrögðum. Hann sagði í samtali við fréttastofu:

„Auðvitað er rót vandans kannski í þessu tiltekna máli veikt stjórnkerfi og spillt stjórnkerfi í landinu [Namibíu]. Það virðist vera undirrót alls þess sem við sjáum flett ofan af.“

Kos sagði þessu ummæli fjármálaráðherra vera röng sé litið til fræðanna. Sá sem býður mútur er jafn ábyrgur og sá sem þiggur þær.

„Það er mér ofarlega í huga að Ísland býr að miklum heilindum en þetta er aum tilraun til að varpa ábyrgðinni frá íslenska fyrirtækinu og einstaklingunum,“ sagði Drago Kos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×