Erlent

Skattsvikamál Shakiru fyrir dóm á Spáni

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Saksóknarar á Spáni höfðu lítinn áhuga á sáttaboði Shakiru.
Saksóknarar á Spáni höfðu lítinn áhuga á sáttaboði Shakiru. Getty

Kólumbísku poppstjörnunni Shakiru hefur mistekist að ná dómsátt með spænskum saksóknurum og mun mál hennar vegna meintra skattsvika því fara fyrir dómstóla. Shakira mun þar halda fram sakleysi sínu. 

„Shakira og hennar teymi telja að vegið sé að hennar réttindum í þessu máli,“ segir í yfirlýsingu frá Shakiru. „Hún hefur ávallt sýnt óaðfinnanlega framkomu, bæði sem manneskja og skattgreiðandi, sem og vilja til að leysa hvers kyns vandamál frá upphafi, jafnvel fyrir ásakanir um skattsvik.“

Shakira er langfarsælasta söngkona Suður-Ameríku og einn söluhæsti tónlistarmaður allra tíma. Hefur hún selt meira en 80 milljónir platna á rúmlega 30 ára ferli sínum sem hófst þegar hún var aðeins 13 ára.

Ágirnd vex með eyri hverjum og skattsvik Shakiru eru nú talin hlaupa á milljörðum. Nánar tiltekið telja Spænsk skattayfirvöld að Shakira hafi svikið 14 og hálfa milljón evra undan skatti á árunum 2012 til 2014. Það er andvirði liðlega tveggja milljarða íslenskra króna.

Shakira hefur haldið því fram að hún hafi verið með lögheimili á Bahamas-eyjum á þessum árum en lúsiðnir starfsmenn skattaeftirlitsins hafa kortlagt ferðir hennar og gjörðir og sýnt fram á að hún bjó í rauninni í Barcelona, en ekki á Bahamas-eyjum.

Saksóknarar á Spáni hafa nú hafnað sáttaboði söngkonunnar og telja sig hafa næg sönnunargögn til þess að dæma megi um það óyggjandi hætti að Shakira hafi komið mörgum milljörðum evra undan skatti.

Þess ber að geta að fyrrverandi eiginmaður hennar og knattspyrnumaðurinn Gerard Pique er einnig sakaður um skattsvik á svipuðu tímabili. 


Tengdar fréttir

Shakira sökuð um stórfelld skattsvik

Fátt getur nú komið í veg fyrir að kólumbíska söngstjarnan Shakira verði ákærð fyrir milljarða skattsvik á Spáni. Söngkonan segist ekki ætla að semja um greiðslu sektar til að ljúka málinu, en verði hún fundin sek á hún nokkurra ára fangelsisvist yfir höfði sér.

Saksóknarar vilja Shakiru í fangelsi í átta ár

Saksóknarar á Spáni hafa farið fram á að kólumbíska poppstjarnan Shakira verði dæmd í rúmlega átta ára fangelsi verði hún sakfelld fyrir skattsvik. Stjarnan hefur verið ákærð fyrir að hafa svikið 14,5 milljónir evra, eða rúmlega tvo milljarða króna, undan skatti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×