Frá þessu var greint á vef Morgunblaðsins í gær. Þar lýsti Kristján Loftsson því yfir að starfsmenn Hvals hafi tekið drónann, sem er frá Swiss National Broadcasting Corporation, eftir að dróninn hafði flogið í um 20 metra hæð yfir hvalstöðinni.
„Samkvæmt lögum er það allt of nálægt, drónar eiga að vera í 150 metra fjarlægð frá athafnasvæðum nema leyfi liggi fyrir til að fara inn á svæðið,“ er haft eftir Kristjáni.
Honum fannst því ekkert athugavert við gripdeild starfsmanna sinna.
Kristján segist einnig hafa neitað því að veita mönnunum viðtal.
„Þeir segjast svo koma hérna 6. ágúst og ég svaraði honum tveimur dögum síðar og sagðist ekki geta hitt hann á þessum tíma. Ef einhver sendir þér skeyti 2. ágúst, á þriðjudegi, og vill hitta þig á laugardegi er bara ekkert á vísan að róa með það og ég sagði honum það bara,“ sagði Kristján.
Gripdeild ekki heimil
Í samtali við fréttastofu staðfestir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi, að málið hafi komið inn á borð lögreglu. Báðir aðilar hafi leitað til lögreglunnar en svissneski dróninn hefur nú verið endurheimtur af embættinu.
Hann áréttar jafnframt að enginn geti „lagt hald“ á síma eða dróna, þó um möguleg persónuverndarbrot eða brot á reglugerðum um fjarstýrð loftför (dróna) sé að ræða. Aðeins sé hægt að kæra atvikið og hafa samband við lögreglu.
Ógnandi tilburðir
Í viðtali Morgunblaðsins vísar Kristján Loftsson til Philippe Blancs, fréttamanns svissneska miðilsins sem veitti Morgunblaðinu viðtal í gær. Philippe segir teymið algjörlega hlutlaust og hafi ekki ætlað að draga upp dökka mynd af hvalveiðunum. Kristján hafi hins vegar logið til um það, hvenær veiðarnar væru.
„Þegar við fórum þarna upp eftir sáum við að starfsemin var í fullum gangi, skip kemur þarna inn með hval,“ er haft eftir Philippe.
„Þá koma þarna upp eftir til okkar níu starfsmenn Hvals og eru lítt við alþýðuskap, hafa í frammi ógnandi tilburði og hóta okkur. Einn þeirra beitti mig armlás svo ég fékk mig hvergi hrært,“ er haft eftir Philippe að auki.
Eins og sagði er málið nú í rannsókn lögreglu.