Metfjöldi kvartana barst, 570, sem er 5 prósent aukning frá metárinu 2020, þegar þær voru 540. Helsta umkvörtunarefnið voru tafir á afgreiðslu máls af hálfu stjórnvalda.
Þetta kemur fram í samantekt um árskýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2021.
Þar segir að stjórnvöld hafi almennt brugðist vel við og farið eftir ábendingum umboðsmanns.
Í skýrslu umboðsmanns segir meðal annars að Covid-19 hafi reynt töluvert á þanþol grunnregla réttarríkisins.
„Sú hætta virðist óneitanlega fyrir hendi að eftir langvarandi ástand, líkt og það sem skapaðist í heimsfaraldrinum, fari stjórnvöld í auknum mæli að líta á skerðingu grundvallarréttinda sem léttvægar eða jafnvel sjálfsagðan hlut með þeirri afleiðingu að réttaröryggi borgaranna skerðist til frambúðar,“ segir í skýrslunni.
Þá er fjallað um innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu, sem hafi bæði kosti og galla. Hún geti mögulega skapað hættur, ekki síst fyrir þá sem ekki eru tölvulæsir eða hafa ekki aðgengi að nauðsynlegum búnaði.
„Þótt kostir rafrænnar stjórnsýslu séu ótvíræðir má upptaka hennar ekki hafa það í för með sér að réttaröryggi borgarana skerðist eða faglegar kröfur séu vatnaðar út.“