Neytendur

Strætó hækkar verðið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Árskortið í Strætó kostar nú 90 þúsund krónur.
Árskortið í Strætó kostar nú 90 þúsund krónur. Vísir/Vilhelm

Notendur Strætó þurfa að greiða 12,5 prósentum hærra gjald frá og með laugardeginum. Stakt fargjald hækkar í 550 krónur, þrjátíu daga nemakort í 4500 krónur og árskortið fer í 90 þúsund krónur.

Frá þessu er greint á vefsíðu Strætó. Þar segir að gjaldskráin hafi verið samþykkt á stjórnarfundi þann 16. september. Stök fargjöld og tímabilskort taki öll sömu verðbreytingu. Stakt fargjald hækkar úr 490 í 550 krónur og 30 daga nemakort hækkar úr 4000 krónum í 4500 krónur.

Gjaldskráin hefur verið óbreytt síðan um áramótin 2020/2021 en þann 16. nóvember 2021 var Klapp, rafrænt greiðslukerfi Strætó innleitt. Þá hafi „öll gjaldskráin einfölduð til að vera sanngjarnari og veita viðskiptavinum jafnari kjör á fargjöldum“.

Verðhækkunum sé ætlað að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum á aðföngum Strætó svo sem olíuverðshækkunum.

„Olíuverð hefur hækkað um tæp 40% frá áramótum og kostnaði vegna vinnutímastyttingar, sem hefur haft veruleg áhrif á reksturinn. Áhrifa heimsfaraldurs COVID gætir enn í rekstrinum og útlit fyrir að uppsöfnuð áhrif á tekjur séu á bilinu 1500 m.kr. til 2000 m.kr. Áhrifa hækkandi aðfangaverðs og lægri tekna má sjá í árshlutauppgjöri Strætó fyrir janúar til júní 2022.“

Ávallt sé reynt að stilla öllum verðhækkunum Strætó í hóf og er hækkuninni ætlað að draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu.

„Jafnframt munu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu skoða að styrkja rekstur Strætó frekar en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2022. Strætó hefur sett sér stefnu um kolefnislausan flota árið 2030 og með því verða áhrif olíuverðs óveruleg á rekstur Strætó.“

Strætó vekur athygli á því að mun hagstæðara sé að nota almenningssamgöngur en einkabílinn. Vísað er til útreikninga Félags íslenskra bifreiðaeigenda sem telur rekstrarkostnað við einkabíl vera upp á 1,3 milljónir króna á ári miðað við fimmtán þúsund ekna kílómetra.

Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en ekki til akstursþjónustu fyrir fatlað fólk en þar verða engar breytingar á gjaldskrá.

Fjallað var um ólíka samgönguhætti í fréttum Stöðvar 2 í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×