Úkraínskir listamenn sýna í Hörpu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 1. október 2022 14:00 Alexander Zaklynsky og Olga Zherebetska eru meðlimir Artists4Ukraine. Aðsend Harpan iðar af menningu og lífi að vanda en samtökin Artists4Ukraine standa fyrir fjölbreyttri listasýningu þar um þessar mundir. Samtökin hafa á undanförnum mánuðum staðið fyrir ýmsum listviðburðum þar sem allur ágóði rennur óspart til góðgerðasamtaka í Úkraínu. Næstkomandi mánudag verður stór söfnunarviðburður á þeirra vegum í Kaldalóni.
Þar verður heimildarmyndin Ég skapa ekki tónlist, hún skapar mig eftir úkraínska leikstjórann Serhiy Bukovski sýnd og rennur 100% miðasölunnar til góðgerðasamtaka sem starfa í og fyrir Úkraínu. Myndin segir frá tónskáldinu Valentyn Vasylyovych Sylvestrov en ásamt sýningunni verða tónlistaratriði og listasýning og er viðburðurinn haldinn til heiðurs V. Sylvestrov sem átti 85 ára afmæli síðastliðinn föstudag. View this post on Instagram A post shared by ARTISTS4UKRAINE (@artists4ukraine_charity) Listsköpun og aktívismi Þann áttunda október verður svo pallborðsumræða á RIFF hátíðinni í samstarfi við Artists4Ukraine sem ber nafnið The One Minutes Jr. Ukraine. Þar munu listamenn opna á umræður um áframhaldandi átök og hrylling í Úkraínu með áherslu á hvaða áhrif það hefur á unga Úkraínubúa. Einnig verður rætt hvernig listsköpun getur verið miðill fyrir aktívisma og tjáningu. Nánari upplýsingar má finna hér. View this post on Instagram A post shared by Olga Zherebetska (@zherebetska_lab) Blaðamaður ræddi við þrjá listamenn sem eru hluti af Arists4Ukraine, þau Alexander Zaklynsky, Olga Zherebetska og Anna Senik, en öll taka þau þátt í þeim viðburðum sem framundan eru. Hvað getið þið sagt mér um listaverkin ykkar? Olga (með hönnunar sýningu í Rammagerðinni): Ég hef nú í nokkur ár verið að stúdera arkitektúr í Úkraínu og þá sérstaklega ákveðinn stíl sem kallast Hutsul Secession. Upphafsmaður stílsins er úkraínski arkitektinn Ivan Levynskyi og þessi stíll er sambland af úkraínskum kóðum og skrautmunum í Art Deco stíl. Fötin sem ég hanna eru túlkun á þessum stíl. Vintage litaðir glergluggar, keramik og form blandast við handavef og útsaums tækni í fötunum mínum. Anna (með ljósmyndasýningu í Hörpu): Þessar myndir sem ég er að sýna standa fyrir hefðbundnar myndir fyrir ólík svæði í Úkraínu. Þegar ég skapaði þær notaðist ég bæði við sanna úkraínska hluti sem og nákvæmar eftirlíkingar gerðar á fagmannlegan hátt. View this post on Instagram A post shared by Anna Senik (@annasenik) Hvaðan sækið þið innblástur í listsköpun ykkar? Olga: Aðal uppspretta innblástursins kemur frá þessum formum akritektúrs og skrautmuna í Úkraínu. Þessir kóðar frá 20. aldar arkitektúrnum í Úkraínu hafa ekki verið teknir fyrir sem slíkir en það eru þeir sem eru vafðir inn í áþreifanleg efni í fatalínum mínum. Ég trúi því að arkitektúr sé óaðskiljanlegur hluti af tískunni. View this post on Instagram A post shared by ARTISTS4UKRAINE (@artists4ukraine_charity) Anna: Fyrir mér er ómögulegt að finna ákveðna uppsprettu innblásturs. Öll lifuð reynsla og fagurfræðileg neysla hefur hjálpað ímyndunaraflinu mínu að fá nýjar hugmyndir og finna þeim farveg. Það er samt auðvitað oft þjóðfræði, slafnesk goðafræði og hefðbundið landsbyggðar líf en stundum getur það líka verið kaflar úr mínu eigin lífi, lifaðar tilfinningar eða sögur frá fólki. View this post on Instagram A post shared by Anna Senik (@annasenik) Hvað finnst ykkur öflugast við að geta skapað list? Olga og Alexander: Listsköpun getur verið heillandi, fræðileg og heimspekileg fyrir suma listamenn. List er skoðuð af ýmsu fólki á margan hátt. List nær árangri þegar hún miðlar sjónrænni skýringu á táknum og erkitýpum sem við búum við. List getur kennt fólki nýjar leiðir við að sjá hlutina, vera til staðar og um leið týna sér í hugsun. List hjálpar fólki að finna tilgang í lífinu og veitir frelsi til að tjá hugmyndir, sem er óaðskiljanlegur hluti af lífi mannsins. Við vonum að listin og tískan sem verður til sýnis í Hörpu hvetji fólk til að sjá úkraínska menningu í nýju ljósi þar sem andi listarinnar, menningin og skapandi frelsi er í forgrunni. Helsti kostur listsköpunar er að nýta persónulegt og skapandi frelsi, á tímum þegar einmitt það hefur valdið ofsóknum gegn mörgum listamönnum og hugsuðum. Listakonan Anna Senik.Aðsend Anna: Mikilvægasti og stórkostlegasti kostur sköpunar er hamingjutilfinningin sem kemur frá því sem þú ert að gera. Viðurkenning almennings og huglæg gildi tengd því eru ekki eins mikilvæg. Listamaður á alltaf að stjórnast af ástinni.
Menning Myndlist Harpa Tengdar fréttir Auka sýnileika hjá úkraínsku listafólki á Íslandi Samtökin ARTISTS4UKRAINE opnuðu á dögunum listgallerí á Laugavegi 12, í sama húsi og Prikið er staðsett. Þar sýna úkraínskir listamenn verk sín ásamt öðrum og stefnt er að því að hafa galleríið gangandi í að minnsta kosti tvo mánuði til viðbótar. Blaðamaður ræddi við Alexander Zaklynsky, sem stofnaði ARTISTS4UKRAINE ásamt Juliu Mai Linnéu Mariu. 26. apríl 2022 12:30 Góðgerðarmál og menning sameinast á kraftmikinn hátt til styrktar Úkraínu Samtökin Artists4Ukraine standa að ýmsum menningartengdum viðburðum í Bíó Paradís þar sem allur ágóði frá viðburðunum rennur til fjölbreyttra góðgerðarfélaga í Úkraínu. Í kvöld, miðvikudaginn 6. apríl, munu Arists4Ukraine í samstarfi við úkraínska kvikmyndafyrirtækið MaGiKa films sýna kvikmyndina Ivan’s Land eftir úkraínska leikstjórann Andrii Lysetskyi. 6. apríl 2022 10:00 Mest lesið „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Menning Björn keypti sex hundruð ára höll í Frakklandi og ætlar að gera hana upp Lífið Hryllingurinn sveif yfir vötnum hjá fræga fólkinu Lífið Fólk grípi til sænsku dauðhreinsunarinnar fyrr en ella Lífið „Ég er miklu oftar gröð en hann“ Lífið Íslenskur leiklistarnemi upplifði óraunverulega stund í New York Lífið Þvertekur fyrir að typpið hafi verið stækkað Lífið Fegurðardrottning fékk nýtt herbergi Lífið Siðlaus maður étur skít og öðlast samkennd Lífið Íbúðin gjörbreyttist eftir að hafa fært eldhúsið Lífið Fleiri fréttir „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira
Auka sýnileika hjá úkraínsku listafólki á Íslandi Samtökin ARTISTS4UKRAINE opnuðu á dögunum listgallerí á Laugavegi 12, í sama húsi og Prikið er staðsett. Þar sýna úkraínskir listamenn verk sín ásamt öðrum og stefnt er að því að hafa galleríið gangandi í að minnsta kosti tvo mánuði til viðbótar. Blaðamaður ræddi við Alexander Zaklynsky, sem stofnaði ARTISTS4UKRAINE ásamt Juliu Mai Linnéu Mariu. 26. apríl 2022 12:30
Góðgerðarmál og menning sameinast á kraftmikinn hátt til styrktar Úkraínu Samtökin Artists4Ukraine standa að ýmsum menningartengdum viðburðum í Bíó Paradís þar sem allur ágóði frá viðburðunum rennur til fjölbreyttra góðgerðarfélaga í Úkraínu. Í kvöld, miðvikudaginn 6. apríl, munu Arists4Ukraine í samstarfi við úkraínska kvikmyndafyrirtækið MaGiKa films sýna kvikmyndina Ivan’s Land eftir úkraínska leikstjórann Andrii Lysetskyi. 6. apríl 2022 10:00