Ísak Snær mættur til Þrándheims Valur Páll Eiríksson skrifar 4. október 2022 14:30 Ísak Snær hefur verið öflugur í liði Blika í sumar og er líkast til á leið til Rosenborgar í Noregi að tímabilinu loknu. Vísir/Hulda Margrét Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, er mættur til Þrándheims í Noregi og mun líklega ganga frá skiptum til Rosenborgar. Hann mun þá ganga til liðs við félagið þegar félagsskiptaglugginn opnar á ný um áramótin.
Norski blaðamaðurinn Stian André de Wahl birtir mynd af Ísaki á flugvellinum í Þrándheimi á samfélagsmiðlinum Twitter. Líklegt þykir að Ísak sé mættur til að ganga undir læknisskoðun og ganga frá kaupum og kjörum við norska liðið. Ísak Snær hefur verið ítrekað orðaður við liðið frá því um mitt sumar en hann hefur átt frábært tímabil með Breiðabliki eftir skipti hans til Kópavogsliðsins frá ÍA síðasta haust. Hann spilaði með Blikum sem unnu 3-0 sigur á Stjörnunni í gær. Ísak Snaer Thorvaldsson er tirsdag på plass i Trondheim for å gjennomføre medisinsk test og fullføre overgangen fra Breidablik til Rosenborg. Allerede enighet om en avtale fra 1.januar 2023. https://t.co/Uxvumobjuy pic.twitter.com/abzVXLjTyX— Stian André de Wahl (@StianWahl) October 4, 2022 Eftir sigurinn er Breiðablik með átta stiga forskot á toppi deildarinnar þegar aðeins tólf stig eru eftir í pottinum. Ísak Snær hefur átt stóran þátt í góðu gengi Blika í sumar en hann er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar með 13 mörk í 20 leikjum. Ísak Snær verður annar Íslendingurinn á mála hjá Rosenborg, gangi skiptin í gegn. Kristall Máni Ingason er leikmaður liðsins en hann skipti til Þrándheims frá Víkingi um mitt sumar.
Besta deild karla Breiðablik Norski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira