Viðskipti innlent

Gull­grafarar komnir í Kauphöllina

Atli Ísleifsson skrifar
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, og Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq, hringdu bjöllunni í Kauphöllinni í morgun.
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, og Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq, hringdu bjöllunni í Kauphöllinni í morgun. Aðsend

Auðlindafélagið Amaroq Minerals var í morgun skráð á íslenska Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn.

Í tilkynningu frá Nasdaq segir að hlutabréf Amaroq Minerals séu fyrir skráð í TXS Venture kauphöllinni í Kanada og á AIM markaðnum í London. Félagið tilheyri efnisvinnslugeiranum (e. Basic materials) og er sæe sextugasta félagið sem tekið sé til viðskipta á mörkuðum Nasdaq Nordic í ár.

„Auðlindafyrirtækið Amaroq Minerals var stofnað árið 2017 með megináherslu á að finna gull og aðra verðmæta málma á Suður-Grænlandi, rannsaka og þróa þau svæði sem málma er að finna og vinna þessa málma úr jörðu. Verðmætasta eign Amaroq er Nalunaq svæðið, þar sem undirbúningur að vinnslu er langt kominn og vinnsluleyfi sem nær m.a. yfir Nalunaq gullnámuna sem þar var fyrir. Amaroq er einnig með leitar- og vinnsluleyfi á svæði sem nær yfir 7.866,85 ferkílómetra, það stærsta á Suður-Grænlandi og nær það yfir tvö þekkt gullbelti á svæðinu. Eitt af meginmarkmiðum Amaroq Minerals er að byggja upp sjálfbæra námuvinnslu í samstarfi við íbúa Grænlands þar sem hefðir og menning samfélagsins verða höfð í heiðri,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Eldi Ólafssyni, forstjóra og stofnanda Amaroq Minerals, að það sé mikill heiður að fá félagið skráð á Nasdaq First North á Íslandi. „Við erum mjög ánægð með frábærar viðtökur í fjármögnuninni sem lauk í undanfara skráningarinnar, þar sem bæði íslenskir og erlendir fjárfestar tóku þátt þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður. Við bjóðum nýja hluthafa velkomna um borð. Þessi skráning gegnir mikilvægu hlutverki í næsta áfanga uppbyggingar okkar á Grænlandi og mun sýnileiki félagsins á Íslandi verða til þess að styrkja tengsl Íslands og Grænlands,“ segir Eldur.

Þá er haft eftir Magnúsi Harðarsyni, Nasdaq Iceland, að það sé Nasdaq mikil ánægja að bjóða Amaroq Minerals velkomið á Nasdaq First North Growth Market Iceland „Skráning Amaroq markar fyrstu skráningu auðlindafélags á Íslandi sem skapar meiri fjölbreytni á markaðnum og gefur íslenskum fjárfestum tækifæri til að fjárfesta í nýjum og áhugaverðum geira. Við hlökkum til að fylgjast með vaxtarferli Amaroq og erum ánægð með að geta stuðlað að þeim aukna sýnileika og vitund fjárfesta sem fylgir þessari skráningu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×