Tvær til þrjár ruslatunnur við sérbýli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. desember 2022 17:13 Tunnur af þessari stærð verða margar hverjar tvískiptar í nýju flokkunarfyrirkomulagi. Vísir/Vilhelm Tvær til þrjár tunnur verða við sérbýli á höfuðborgarsvæðinu með lögum um hringrásarkerfi sem taka gildi um áramótin. Íbúum verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili; pappír, plastumbúðir, matarleifar og blandaður úrgangur.
Í tilkynningu frá Sorpu segir að samræmt flokkunarkerfi taki gildi um áramótin. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kjósarhreppur, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa unnið ötullega að undirbúningi nýja kerfisins undanfarin tvö ár. Stefnt sé að því að innleiðing breytinganna hefjist á vormánuðum 2023. Sorpa segir íbúa ekki þurfa að aðhafast neitt í tengslum við þessa breytingu annað en að tileinka sér nýja flokkunarsiði. Tunnum fyrir þessa fjóra flokka verður komið fyrir við íbúðarhús eftir þörfum. Meginmarkmiðið sé að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er og í flestum tilfellum verði leitast við að koma tunnum fyrir í því rými sem er þegar til staðar við íbúðarhús. Til viðbótar við fjögurra flokka kerfi við heimili verður grenndargámum fjölgað. Gleri, málmum, textíl og skilagjaldsskyldum umbúðum verður safnað á grenndarstöðvum sem verða staðsettar um 500 metra frá hverju heimili. Stærri grenndarstöðvar verða í um kílómetra fjarlægð frá hverju heimili og þar bætast við gámar fyrir pappír og pappa, og plast.Sorpa Í hinu nýja kerfi verða því að jafnaði tvær til þrjár tunnur við sérbýli þar sem boðið verður upp á tvískiptar tunnur en í fjölbýlishúsum fer útfærsla eftir aðstæðum á hverjum stað. Nú verður skylda að flokka matarleifar frá öðrum úrgangi. Til að auðvelda breytinguna fá öll heimili á höfuðborgarsvæðinu gefins sérstaka körfu undir matarleifarnar og pappírspoka sem fara í hana. Fyrirkomulagið verður svona við sérbýli. „Með því að flokka matarleifar frá blönduðum heimilisúrgangi er hægt að endurvinna þær í metangas og moltu. Hið samræmda flokkunarkerfi sveitarfélaganna mun því draga stórlega úr urðun og síðar brennslu á úrgangi og styðja við innleiðingu hringrásarhagkerfisins,“ segir í tilkynningunni. Samhliða þessum breytingum verður grenndargámum gefið nýtt hlutverk við að taka á móti málmi, gleri, textíl og skilagjaldsskyldum umbúðum, sem samkvæmt lögum ber að flokka sérstaklega og safna í nágrenni við íbúa. Svona verða flokkunartunnur við fjölbýli. Á vefsíðunni Flokkum.is er fyrirkomulag við sérbýli og fjölbýli skoðað nánar. Við sérbýli verða ýmist tvær eða þrjár tunnur eftir því hvernig plássið verður. Stærri tunnur verða nýttar við fjölbýlishús. Fyrir breytingu: þrjú 660 lítra kör eða samtals 1.980 lítrar. Eftir breytingu: tvö 660 lítra kör (annað fyrir pappír/pappa og hitt fyrir plastumbúðir), ein 360 lítra tunna fyrir blandaðan úrgang og ein 240 lítra tunna fyrir matarleifar, samtals 1.920 lítrar. Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, sagðist á dögunum telja að formenn húsfélaga séu almennt jákvæðir gagnvart breytingunum. Víða sé þetta þó stórt verkefni. Sums staðar muni þurfa að byggja sorpgerði utanhúss í stað þess að vera með sorpið í þröngum geymslum innandyra. „Frávik í umgengni og frávik í flokkun veldur ákveðnum vandkvæðum í daglegum rekstri húsfélaga þannig að þetta mál er alltaf ljóslifandi fyrir forsvarsaðilum húsfélaga,“ sagði Daníel í Morgunblaðinu á dögunum. En hvað þarf að flokka? Í tunnu fyrir matarleifar fer meðal annars: eggjaskurn matarleifar með beini kaffikorgur fiskiúrgangur Í tunnu fyrir plastumbúðir fer meðal annars: snakkpokar plastfilma plastpokar sjampóbrúsar Í tunnu fyrir pappír og pappa fer meðal annars: dagblöð pappírsumbúðir bréfpokar pítsakassar Í tunnu fyrir blandaðan úrgang fer meðal annars: dömubindi blautklútar bleyjur ryksugupokar Þá verður málmumbúðum (niðursuðudósir o.fl.) og glerumbúðum (glerkrukkur o.fl.) safnað á grenndarstöðvum. Matarleifum verður safnað í bréfpoka sem sveitarfélögin útvega íbúum. Pokarnir hafa gefist mjög vel á Norðurlöndunum og skipta lykilmáli til að hægt sé að vinna nothæfa moltu úr matarleifunum. Þá munu sveitarfélögin útvega íbúum ílát til að safna matarleifum inn á heimilum.
Sorpa Umhverfismál Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Vara við súkkulaðirúsínum Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman „Algjört siðleysi“ Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Segir leigusala hækka leigu í takt við skerðingu Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur eigi meira inni Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Sjá meira